Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1927, Side 77

Eimreiðin - 01.10.1927, Side 77
EIMREIÐIN Þ]ÓÐNÝTINQ Á ENQLANDI 381 óvarkárni, og einstöku sinnum viljandi, óvinalöndunum brezkar og innfluttar vörur, sem vér höfðum sjálfir þörf á«. Bretar fundu sig þá óumflýjanlega til neydda að gera stór- feldar breytingar á skipulagi sínu, eins og áður er sagt. Ég ætla nú að drepa á helztu breytingarnar, og skýra frá því, hvernig höf. telur, að þær hafi lánast. Hann skýrir fyrst frá þjóðnýting hergagnanna. Stjórnardeild var stofnuð með lögum 8. júní 1915 til þess að koma skipu- lagi á hergagnabirgðirnar (Ministry of Munitions), svo að fram undir ár var þá liðið frá því er ófriðurinn hófst. Höf. telur það ómetanlegt tjón, hve lengi það drógst, meðal annars fyrir þá sök, að sægur af sérstaklega hæfum mönnum, sem þessi stjórnardeild þurfti á að halda, höfðu gerst sjálfboðaliðar í ófriðnum, en mikill mannfjöldi var eftir í landinu, er fékst við framleiðslu þeirra hluta, sem voru gersamlega gagnslausir. Hergagnadeildin átti við mikla og óvenjulega örðugleika að etja. Samt tókst henni, segir höf., að sýna þjóðinni, að hún gat framleitt meira, þrátt fyrir örðugleikana, en skipulagslaus framtakssemi gat af hendi int með miklu meira valdi. Ég verð að fara fljótt yfir sögu og að eins stikla á nokkur- um þeirra atriða, sem höf. skýrir frá. Stjórnin stofnaði verk- smiðjur fyrir sprengikúlur. I þessum verksmiðjum jókst fram- leiðsluhraðinn, frá því sem hann hafði áður verið, alveg gífur- lega. Þær birgðir, sem áður höfðu þurft heilt ár til þess að verða til, voru nú framleiddar á þrem vikum, þær sem lengst- an tíma tóku, en á fjórum dögum, þær sem greiðast reyndist að búa til. Stjórnin tók að sér alt vald yfir málmvörum. Henni tókst að færa verðið niður stórkostlega. Þegar í desember 1915 tilkynti Lloyd George, að sparnaðurinn hefði þá numið 15 til 20 miljónum punda, auk þess hvað framleiðslan var örugg. Og í ágúst 1916 taldist hergagnaráðherranum svo til, að sparnaðurinn á fáeinum málmtegundum, sem hann taldi upp, hefði þá numið 41 miljón punda. í júnílok 1917 lét einn hergagnaráðherrann þess getið, að flokkur af sprengikúlu- verksmiðjum, sem kostað hefðu 1 miljón og 5 hundruð þúsund pund, hefðu framleitt vörur fyrir 3 miljónir og 500 þúsundir, sem mundu hafa kostað 7 miljónir punda, ef stjórnin hefði ekki sjálf rekið verksmiðjurnar.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.