Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1927, Side 92

Eimreiðin - 01.10.1927, Side 92
396 RITSJÁ EIMREiÐIN lagi fer þaö eftir því, hvernicf honum tekst þetta. Án þessa markmiðs verður sagan oftast áhrifalaus, aðeins stundargaman, þegar bezt lætur. Markmið höf. með þessari sögu er ekki fyllilega ljóst enn þá, enda er sagan ekki 611. í síðara hlutanum kemur það vafalaust skýrara fram, að hverju höf. stefnir. Nafnið bendir ekki til neins í þá átt, hvaða viðfangs- efni vaki fyrir höf. Það getur verið fleira en eitt. En næst Iiggur að álykta, að takmarkið sé að sýna afleiðingar þess árekstrar, sem ást og skylda veldur stundum í lífi mannanna. Til þess benda orð Rannveigar við Helga (bis, 128) skömmu áður en hann fer að heiman með Áslaugu: „Ég ætla að biðja guð þess í öllum mínum bænum — að þér verði það ekki til óhamingju — að svona ógæfusamlega er byrjað“. Þetta er stór- felt viðfangsefni og vandfarið með það. Það hefur verið yrkisefni skálda á öllum tímum. Kristín Sigfúsdóttir er svo mikið skáld, að henni er óhæft að fást við erfið viðfangsefni. Það er hún þegar búin að sýna. En hvernig svo sem framhaldið veröur, þá er hitt víst, að þessi bók Krist- ínar stendur ekki að baki fyrri bókum hennar. Efnið er tekið út úr ís- lenzku sveitalífi, og svo vel farið með það, að slíkt gera ekki aðrir en þeir, sem mikum rithöfundarhæfileikum eru gæddir. Sv. S. ÁRSRIT NEMENDASAMBANDS LAUQASKÓLA 2. ár. Ritstjóri: Arnór Sigurjónsson. Ak. 1927. Það er nýlunda að sjá jafn-vandað ársrit frá íslenzkum skóla eins og hér gefur að líta. Skólaskýrslur flytja fremur hagfræði en bókmentir. Hér skipa bókmentir öndvegi. Skólaskýrsla og -reglur koma aftast í röð. Ritið ber með sér, að norður í Þingeyjarsýslu sé að komast á laggirnar fyrirmyndar-alþýðuskóli, sem eigi bjarta og dáðríka framtíð framundan. Aðaltakmark skólans er að kenna nemendum að hugsa sjálfstætt og vinna sjálfstætt. Það takmark er að vísu ekki óþekt áður í skólastarfsemi ís- lenzkri, en aðaltakmark hefur það alment ekki verið til skamms tíma — hvorki í æðri skólum vorum né lægri. En það er líka annað sem vekur fögnuð við Iestur þessa rits. Það er þjóðræknisandinn, sem ríkir í skólanum og kemur fram í ritinu, ekki sízt f ágætu erindi eftir ]ón Sigurðsson frá Yztafelli, formann skólaráðsins. Erindið heitir: Hvaða land er bezt? og er birt þarna sem rödd frá stjórn skólans. Eg veit ekki nema að einhverjir mundu dæma þetta erindi fult af þjóðrembingi og bændadekri. Eg gæti bezt trúað því. Það er ekki orðið óalgengt að núa þeim mönnum þjóðarhroka um nasir, sem tala af einlægni og innileik um ást sfna á landi og þjóð. Má vera að þjóðar-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.