Eimreiðin - 01.10.1927, Page 93
EIMREIÐIN
RITS]Á
397
hroki, sem meÖ réttu geli heitiÖ því nafni, sé til hér á landi. En vér
þurfum ekki að óttast hann. Þjóðernisstefna í anda prússnesks þjóðremb-
ings, eins og hann var fyrir stríð, eða ensks „imperialisma", á ekkert
fylgi á íslandi. íslenzk þjóðrækni er ættjarðarást, ekki þjóðrembingur.
Hér dvelur mín sál, hér dreymir mig alt,
sem drottinn oss gaf — til að unna
segir Einar Benediktsson í hinu snjalla kvæði sínu „Hvammar" hér að
framan. Heim í hvammana íslenzku leitar langþreyttur hugur skáldsins.
Þar og hvergi annarstaðar finnur hann fullnægju, hvíld. Æskumaður!
Snúðu heim! eru viðvörunarorð höfundarins að áðurnefndu erindi Lauga-
skólaársritsins. Sama hugsunin á bak við. Heima finnur þú sjálfan þig
bezt. Þar fær ást þín svar.
1 ritinu eru góð sýnishorn þess, hvernig starfað er við skólann. Þar
eru ritgerðir, sem bera einkenni þjálfaðrar hugsunar og sumar ritaðar í
þeim stíl, að sýnir ríkan listasmekk, ef til vill meðfæddan og sjálftaminn,
en ef til vill líka vakinn af góðum kennurum. Um það verður ekki dæmt
af ókunnugum. Skólastjórinn ritar um hugsjónir og eggjar unga menn
Iögeggjan að vera sjálfum sér og æskuhugsjónum sínum trúir, snjalt er-
indi og þarft. Nokkur kvæði eru þarna og eftir nemendur skólans, að
vísu ekki stórfeld en öll lagleg. Margt fleira hefur ritið að flylja, þótt
hér verði ekki nánar upptalið. Sv. S.
ÆTINT'/RABÓKIN. Þýðingar í óbundnu máli eftir Stgr. Thorsteins-
son. Rvík 1927. (Útg.: Axel Thorsteinsson).
Æfintýri þessi eru gamlir kunningjar og geta verið góður lestur fyrir
börn og unglinga, því flest þeirra hafa inni að halda ýmsar góðar og
göfugar siðakenningar, og eru auk þess skemfilega skrifuð. Rauðhetta
itla, Þyrnirósa og Fyrir austan sól og vestan mána eru t. d. hvert öðru
skemtilegra æfintýr. Að vísu er til nægilegt innlent Iestrarefni handa ís-
lenzkum börnum og unglingum, þar sem eru þjóðsögurnar og æfintýrin
íslenzku og fjölmargt úr íslendingasögunum, svo aðeins sé bent á tvær
greinar íslenzkra bókmenta. En vér getum mælt hið bezta með þessum
æfintýrum við þá, sem leita vilja út fyrir Iandssteinana um lestrarefni
handa börnum sínum, og þeir er vafalaust margir. Sv. S.
jJAMES BRVCE. BV H. A. L. Fisher. Vol. I. XI + 360 bls. Vol. II.
VII + 360 bls. The Macmillan, London 6í New York 1927. Verð: 32 sh.
I hópi andlegra höfðingja enskumælandi, sem ástfóstri hafa tekið við