Eimreiðin - 01.10.1927, Síða 96
400
RITSJÁ
EIMREIÐIN
lendingar, Færeyingar og Norðmenn, verða að standa saman um á verði
ef nokkur von á að vera um sigur. — — —
Annars verður eigi efni tímaritsins rakið hér til hlítar í þessari stuttu
grein minni. En furðuleg þykir mér þögnin um tímarit þetta! Ritsfjóri
þess er einn hinn merkasti og viðkunnasti meðal eldri blaðamanna í Noregi,
Jöhannes Lavík að nafni. Var hann stofnandi nýnorska dagblaðsins „Gula
Tidend" og ritstjóri þess um 15 ára skeið. Hann er íslandsvinur einlægur
og skilur manna bezt alla vora sjálfstæðisviðleitni. Helgi Valtýsson.
EVERYDAY ENGLISH for foreign students (with „Craigie" pronun-
ciation marks) by Simeon Potter, M. A., London 1927 (Sir Isaac Pitman
& Sons, Ltd.) Verð: 3 sh. 6 d.
Þetta er einhver hentugasta og skemtilegasta námsbók í enskri tungu,
sem ég hef kynst. Jafnframt þvf að vera kenslubók í sjálfu málinu fræðir
hún lesendurna um nálega alla skapaða hluti, sem við koma daglega lífinu
á Englandi, eins og það gerist og gengur nú á dögum. Leskaflarnir eru
með framburðartáknum hins víðfræga „Craigie“kerfis, sem nú er einnig
farið að nota hér á landi, og sjálfur ritar próf. W. A. Craigie formála
fyrir bókinni. Fjöidi ágætra mynda fylgja textanum. Eimr. vill vekja at-
hygli íslenzkra enskukennara á bók þessari ekki síst þeirra, sem nota
byrjendabækur Craigies við kensluna. Fyrsta skilyrði þess að tungumála-
nám komi að tilætluðum notum, er það, að nemandinn Iæri að beifa
málinu í öllum daglegum viðskiftum. Efni þessarar bókar er nálega alt um
þessi daglegu viðskifli og svo fjölbreytt, að þarna er að finna þúsundir
algengustu og nauðsynlegustu orða í náiega öllum greinum daglegs lífs.
Hér eru kaflar um heimilið eins og það gerist á Englandi, heimsóknir,
máltíðir, íþróttir og skemtanir, klæðaburð, uppeldi, peninga, mæli og vog,
járnbrautarferðir, gistihús, sjóferðir, loftferðir, pósthúsin, bankana, bréfa-
viðskifti, daglegt líf í London, enskan landbúnað, New York, Edinborg,
Birmingham og stáliðnaðinn, Manchester og bómullariðnaðinn, Grimsby
og fiskiveiðarnar, þing og stjórn o. s. frv.
Eins og titillinn ber með sér, er bók þessi ætluð erlendum enskunem-
endum. Höfundur hennar er prófessor við Masaryk-háskólann í Moravíu
í Tékkoslóvakíu og hefur auk þess á hendi opinbera kenslu í ensku með
víðvarpi, þar í landi. Er í ráði að nota bók þessa sem handbók handa
þeim, sem njófa þessarar víðvarpskenslu, og mætti svo einnig verða hér
á landi. Sv. S.