Eimreiðin - 01.10.1933, Blaðsíða 56
406
ESPERANTÓ OG ENSKA
eimreiðin
næst, á ferðalögum um ýms lönd og jafnvel í kringum hnött-
inn. En auðvitað hafa menn þá undirbúið ferðalagið áður
með því að skrifa esperantistum, þar sem þeir ætluðu að fara
um, og fá þá til þess að liðsinna sér. Meðal esperantista er
félag, sem nefnist Allsherjar Esperantófélagið (Unwersala
Esperanto Asocio), sem sett hefur sér það markmið að greiða
sem mest fyrir notkun málsins. Það hefur fulltrúa í um 2000
borgum út um allan heim, og eru þeir allir ásamt heimilis-
fangi skráðir í árbók félagsins. Eru þeir eins og nokkurs-
konar esperantó-konsúlar, sem félagsmenn geta snúið sér til
með beiðni um upplýsingar eða aðra fyrirgreiðslu. Hefur þetta
skipulag aukið mikið á notagildi málsins. Auk þess hafa
esperantistar víðsvegar um heim, er hafa sameiginleg áhuga-
mál, myndað með sér félög til að sinna þeim málum, og gefa
þau sum út blöð eða tímarit á esperantó. Meðal þeirra ma
nefna félög vísindamanna, kennara, lækna, lögfræðinga, lög-
reglumanna, póstmanna, bankamanna, kaþólskra manna, mót-
mælenda, kvekara, meþódista, búddista, friðarvina, verkamanna,
skáta, blindra manna, jurtaneytenda, hraðritara o. s. frv.
Ég þykist nú hafa tilfært nóg til að sýna, að fullyrðinð
greinarhöf. um, að enginn geti haft not af esperantó, er alveg
gripin úr lausu lofti. Þar með er því engan veginn neitað,
að meiri not megi hafa af öðrum útbreiddari málum, en þa
kemur líka á hinn bóginn til álita, hve mikið er lagt í söl-
urnar, hve miklu auðveldara er að læra esperantó heldur en
önnur mál.
Á öllum menningarmálum eru til einhverjar bókmentir. En
vei þeim, sem heldur slíku fram um esperantó, því að un1
það farast greinarhöf. þannig orð: „Þegar verid er að tala
um bókmentir á þessu eða nokkru öðru tilbúnu máli, þá er
það bara bull og þvaður. Eða hvar er þær bókmentir að
finna? Það sannar ekkert þótt unt sé að romsa upp nokkuð
marga titla á ritum, sem sérvitringar hafa, einkum nú síðustu
fimtíu árin, þýtt á þessi mál, né heldur hitt, að þessi eða hiuu
hefur skrifað eitthvað á esperantó11. „Slík skrif eru andvana-
fædd afkvæmi, hvort sem þau eru prentuð í Kákasus eða a
íslandi“. »A benægter Fakta* (ég neita staðreyndum) sagð'
józkur þingmaður, þegar honum eitt sinn var bent á, að Þa^