Eimreiðin - 01.01.1948, Blaðsíða 49
eimreiðin
HELÍUM OG NOTKUN ÞESS
37
erfiðleika þessara sjúklinga við að anda. Rannsóknir í þessum
efnum hafa þegar borið mikinn árangur, og þeim er haldið áfram.
öllum deyfingarefninn úr kolvetnum er hætt við íkviknun,
þegar þau blandast lofti, súrefni eða köfnunarefni í vissum hlut-
föllum. Það má búast við eldi og sprengingum í tilraunastofunni,
ef ekki er að gert. Námasérfræðingar hafa reynt að gera þessar
Möndur óeldfimar með því að minnka súrefnismagn þeirra, en
hæta við helíum í staðinn. Aðalkostir lielíums við deyfingar eru
þeir, að það þynnir deyfiblönduna, svo að sjúklingurinn á liæg-
ara með að anda. Líkamleg óþægindi verða mjög lítil, og hæfni
helíums til að leiða rafmagn er til mikils öryggis.
Það er nú sannað með rannsóknum, að hægt er að gera full-
nýtar, óeldfimar deyfiblöndur úr lielíum, með því að blanda það
súrefni, eter og fleiri efnum. Tilraunir með þetta hafa verið
gerðar á St. Francis sjúkraliúsinu í borginni Pittsburg í Banda-
ríkjunum.
Nú, þegar liægt er orðið að fá keyptar ríflegar birgðir af
helíum við vægu verði og fjölmargir frumeiginleikar þess eru
°rðnir kunnir, eykst þýðing þess í vísinduin og allskonar iðnaði
hröðum skrefum. Það er t. d. notað í sumum sjóntækjum, einnig
að verja hluti, sem þola illa álirif lofts. Einnig er farið að
ttota það í ísskápa og önnur frystitæki.
Því ómengaðra sem helíum er, þeim mun betur skilar það
hlutverki sínu, og er unnið að því að lireinsa það enn betur en
áður hefur tekizt. Nýjar aðferðir til að vinna það í fljótandi
^standi liafa og valdið því, live ódýrt það er orðið. Helíumfram-
leiðslustöðvar Bandaríkjanna liafa nóg að gera. En stjórnin leyfir
ehki notkun lielíums til annarra hluta en þeirra, sem ekki verða
tutnir jafnfullkomnir úr neinum öðrum efnum. Hún veit sem er,
að þó að helíumlindirnar verði að vísu ekki tæmdar um langt
arabil, þá ganga þær til þurrðar eins og annað, og ekkert getur
homið í þeirra stað. Þess vegna ber að gæta þeirra vel og eyða
ekki hinu dýrmæta efni þeirra að óþörfu.