Eimreiðin - 01.01.1948, Blaðsíða 82
70
EIMREIÐIN
SÝN
Þá varð hann alvarlegur á
svipinn og sagði:
„Það eru til margar konur,
sem liafa ástæðu til að vera
hryggar. Sumar eiga menn, sem
ekkert vinna sér inn. Aðrar
eiga menn, sem þykir ekkert
vænt um þær. En þú gengur
með grillu, gersamlega að
ástæðulausu“.
Þá varð mér ljóst, að sjálf
blinda mín hafði orðið mér
orsök til að öðlast óskeikula sýn
inn í óumbreytanlega veröld.
Já, ég fann, að það var satt, að
ég var orðin öðruvísi en aðrar
konur og að maðurinn minn
mundi aldrei skilja mig.
IV.
Dagarnir liðu, tilbreytingar-
lausir eins og áður. En svo gerð-
ist sá atburður, að frænka
mannsins míns kom að Iieim-
sækja okkur.
Það fyrsta, sem liún blaðr-
aði út úr sér, eftir að hún sté
inn fyrir þröskuldinn, var
þetta:
„Jæja, Kumó mín, mikið böl
er það, að þú skvdir vera orðin
blind! En þú mátt ekki láta
það böl bitna á manninum þín-
um. Þú verður að sjá um, að
bann giftist annarri konu“.
Það varð ömurleg þögn. Eng-
inn sagði neitt. Hefði maður-
inn minn rekið upp hlátur eða
slegið þessu öllu upp í gam-
an, befði rætzt vel fram úr öllu.
En liann varð hikandi og stam-
aði loks órólegur og aulalegur
í bragði: „Heldurðu það virki-
lega,------heldurðu virkilega,
frænka, að rétt sé að tala
svona?“
Frænkan skírskotaði til mín
og sagði: „Hafði ég rangt fyrir
mér, Kumó?“
Ég bló kuldahlátri.
„Heldurðu, að það væri ekki
réltara, að þú leitaðir ráða hjá
öðrum en mér í þessu máli?
Vasaþ jófurinn biður aldrei
manninn, sem liann ætlar að
ræna, um leyfi til að stela vvr
vösum lians“, sagði ég.
„Þú segir alveg satt“, sagði
bún, mjúk á manninn. Heyrðu,
Abinasb minn góði, við skuluin
lala um þetta í einrúmi. Hvað
segirðu við því?“
Eftir nokkra daga spurði
Abinash, maðurinn minn, hana
í viðurvist minni, livort bun
þekkti nokkra stúlku af góðum
ættum, sem bægt væri að fa
til þess að lijálpa mér við bus-
verkin. Hann vissi reyndar vel,
að ég þurfti ekki neina aðstoð.
Ég sagði ekki neitt.
„Ó, það er til nóg af þeim »
svaraði frænkan. „Ættingi minn
einn á dóttur, nýkomna á gift'
ingaraldur, og geðþekkari