Eimreiðin - 01.01.1948, Page 51
EIMREIÐIN „ÞAR GUL SÍTRÓNAN GRÆR“ 39
var ritað. Bað liann mig að flýta för rninni sem mest, ella mundi
liann neyðast til að far.’i á undan mér til Rómar og lil tók œski-
legan komudag minn til Genóva, og var sá dagur liðinn, er mér
harst bréfið. Hann gaf mér upp nafn og lieimilisfang deildar-
bróður síns í Ziiricli, Ásgeirs Bjarnasonar frá Reykjavík, og
®agði mér að leita til lians, því að liann væri manna hjálpfús-
astur og mundi allt fyrir mig gera.
Ég kvaddi París um kvöldið, tók næturlestina til Zúricli til
að spara mér gistingu; hafnaði svefnvagni, en pantaði sæti í
blefa á 2. farrými.
Við vorum þrjú í klefanum, þýzkættaður Svissleudingur og
barnung, ensk stiilka. Lagðist sá svissneski þegar endilangur á
bekkinn sinn, og segir fátt af honum. Ég fer að ræða við sessu-
Raut minn og er efst í hug að bjóða honum að leggjast í sætið,
eu kem mér lengi vel ekki að því. Loks styn ég því þó upp og
býðst til að lána lienni ábreiðu. Og ég hafði hitt naglann á liöfuðið.
Éún snarar sér þegar úr skónum, leggst upp á bekkinn og sofnar
von bráðar með mig fyrir fótagafl, og minnist ég ekki, að mér
bafi í annan tíma fundizt gott að láta fótumtroða mig.
Er ég kem til Zúrich, verður mér fyrst fyrir að finna Ásgeir
að máli, og var hann góður lieim að sækja. Dvel ég nokkra daga
1 borginni, og er allt stórtíðindalaust. Skeyti Iiafði ég þegar sent
til Haraldar, en fæ það svar frá símastöðinni í Genóva, að maður
ineð þessu nafni húi ekki lengur á greindum stað, og veit enginn,
bvar hann er að hitta. Ég bölva honum bæði hátt og í hljóði
°S tel víst, að ég muni ekki hitta liann í förinni fyrir bragðið.
Éóinaborg er stór, Harahlur að vísu líka, þótt ekki fari meira
fyrir honum en títuprjóni í tunnu, ef leita á lians þar.
Nú er mestu vandkvæðum bundið að liola sér niður í gisti-
búsuni á meginlandinu, þegar fyrirvari er enginn, en Ásgeir
býðst til að leysa þau vandræði. Vill svo til, að hann þekkir ritara
1§lenzka ræðismannsins í Genóva, Hálfdáns Bjarnasonar, ungan
Áusturríkismann, Ludwig Lustig að nafni, og hringir hann í
bann fyrir mig og biður hann að útvega mér herbergi, en því
er tekið hið bezta, og býðst ritarinn til að taka á móti mér á
stöðinni, en ég ákveð brottför mína frá Zúricli daginn eftir. Lét
Ásgeir lionum í té alllanga lýsingu af mér, en ég fékk lýsingu á
bonum síðar.