Eimreiðin - 01.01.1948, Page 67
eimreiðin „ÞAR GUL SÍTRÓNAN GRÆR“ 55
ítalskra kvenna eigi rót sína að rekja til þessa. — ítalskir karl-
menn eru gervilegir, en standa ungu stúlkunum að baki.
En því kom mér kvenþjóðin í liug í sambandi við kvöldgöngu
okkar, að okkur gafst þá ágætt tækifæri til að kynnast capriskum
æskulýð. Unga fólkið var saman komið niðri við liöfnina, því
að þau tíðindi höfðu gerzt, að orðið liafði hvalreki á fjöru þeirra
Capribúa, og í þetta sinn með harla óvenjulegum hætti. Hér
var nefnilega ekki um að ræða hóp amerískra milljónamæringa,
heldur stórhveli í bókstaflegri merkingu. Höfðu fiskimenn stugg-
að hvalnum inn í liöfnina, síðan komið á liann böndum, og nú
spriklaði hann í flæðarmálinu öllum til augnayndis. Og auðvitað
skipuðu blómarósirnar meiri hluta áhorfenda og livöttu strákana
óspart, að láta ekki þetta liapp úr hendi sleppa. Morguninn eftir
var hvalurinn dauður og lá nú í sjónum frammi við liafnargarð.
har var seldur aðgangur að honum, og var liann, minnir mig,
30 lírur fyrir Capribúa, en 100 fyrir útlendinga. Ágóðanum
atti að verja til líknarstarfsemi.
Morguninn eftir sömdum við áætlum um ferðalög á eynni,
því að við bjuggumst við að fara næsta dag. Við kynntum okkur
því sögu eyjarinnar, sem ekki er einungis fræg fyrir náttúru-
fegurð, heldur einnig fyrir heilnæmt loftslag, fornmenjar frá
óögum hinna fyrstu rómversku keisara og síðast en ekki sízt,
að þar getur náttúruundur, sem ekki eiga sinn líka í víðri veröld.
Er hér einkum um hella að ræða, og er Grotta Azzurra (Blá-
hdlir) þeirra merkastur. Þangað fórum við með vélbát, ásamt
fleiri ferðalöngum, en í hellinn verður aðeins komizt frá sjó.
Hanu liggur í sævarhamrinum á eynni norðanverðri, og er munn-
lnö, sem er hálfur í sjó, svo lítill, að ekki verður komizt inn
Utn hann nema á þar til gerðum báti. Við smjúgum inn um
°sjálega glufuna, og birtist okkur þá liin ótrúlegasta ævintýra-
llell, furðulegasta náttúrusmíð sinnar tegundar. Hér er liátt til
lofts og vítt til veggja, en firnadjúpt niður á hellisgólfið. En
hellirinn er 60 metrar á lengdina, 30 á breidd, meðalhæð upp
1 rjáfur 10—12 metrar, en skiptir tugum, þar 6em hæst er, og
er allur fagurblár, og þar af hlýtur hann nafn og frægð. Lítil
^lfta kemst inn um hellismunnann, en undir yfirborði vatnsins
er annað op og stærra, og þaðan berst hellinum birtan gegnum
8afirbláan sjóinn, og virðist því töfrandi blár. Af öðrum hellum