Eimreiðin - 01.01.1950, Side 77
EIMREIÐIN
LEIKLISTIN
65
ÞjóSleikhúsiS nýja.
forvitnina. Framtíðin ber i skauti
sínu, hvort eftirvæntingunni, sem
hlaðizt hefur upp utan um þetta
hús allra húsa í full 20 ár, verður
fullnægt á listrænan og menning-
arlegan hátt.
Leikfélag Hafnarfjarðar sýndi
á útmánuðunum nógu skemmti-
^egan amerískan gamanleik, „Ekki
er gott, að maðurinn sé einn“. Frú
fnga Laxness hafði þýtt leikinn
°g sviðsett og tekizt hvort tveggja
skaplega. Af hinum óvönu leik-
endum vöktu eftirtekt frú Jóhanna
Hjaltalín og Valgeir Óli Gisla-
s°n. Siguröur Kristjánsson, sem
lék aðalhlutverkið, var tíðast furð-
anlega hiklaus í framgöngu.
Menntaskólanemendur í Reykja-
vík sýndu að vanda sjónleik nokk-
Ur leikkvöld á þorranum. Þeir
höfðu valið „Stjórnvitra leirkera-
smiðinn" eftir Holberg og valið
vel, því að Holberg hefur verið
eitt hið mesta skólaskáld allt frá
dögum Hólavallarskóla. Baldvin
Halldórsson var leikstjóri. Mennta-
skólanemendur á Akureyri hafa
tekið upp hina sunnlenzku sið-
venju, og sýndu þeir í vetur gam-
anleikinn „Vitlausraspítalinn" eft-
ir Carl Laufs. Leikstjóri þeirra
var Jón Norðfjörð.
Templarar eru farnir að keppa
við Bláu stjörnuna í kabarettsýn-
ingum. Kaffi er drukkið á öðrum
staðnum, snafsar á hinum. Frið-
finnur kynnir fyrir templara, Har-
aldur Á. fyrir ekki templara.
Önnur er skapleg skemmtun, hin
óskapleg, en Haraldur hefur líka
tromp á hendi, þar sem er Soffía
Carlsdóttir. Hún hefur ekki brugð-
ist þeim vonum, sem leikur hennar
í litlu hlutverki í „Eftirlitsmann-
inum“ vakti. Hvorir fari með
vinninginn, templarar eða ekki
templarar, er smekksatriði. — Eg
kýs kaffið.
L. S.
5