Eimreiðin - 01.04.1952, Side 38
Straumar íslands
eftir Jón Dúason, ilr. juris.
Mér sem fleirum hefur orðið
það á að nota orðið landhelgi
um það, sem í raun réttri hét
og heitir enn straumar, straum-
ar íslands eða straumar kon-
ungs. Hef ég, hvað þetta snert-
ir, í gáleysi fylgt fjöldanum án
þess að hafa kannað málið.
Vildi ég biðja alla góða menn
um að leiðrétta orð min, þar
sem ég hef nefnt yfirráðasvæði
fslands á hafinu landhelgi, því
það heitir að réttu lagi straum-
ar og á að heita svo, m. a.
vegna þess, að við þurfum á
nafninu landhelgi að halda til
þess að tákna allt annað, það
sem landhelgin merkti upphaflega, það sævarbelti fram með
ströndum fslands, þar sem útlendingum var bannað að fiska.
Yfirráðasvæði íslands á hafinu hét á fyrri öldum straumar,
og svo heitir þetta yfirráðasvæði þess með réttu enn. Það var
talað um strauma Islands, en þó oftar um strauma konungs eða
strauma Noregs krónu, en svo hét fyrrum króna hins fullvalda
íslenzka konungsríkis. Það er rangt að nefna þetta yfirráðasvæði
íslands á hafinu landhelgi, en stórum verri er þó sú yfirsjón,
sem stungið hefur upp kollinum, en hún er að halda, að straum-
ar eða yfirráðasvæði íslands á hafinu nái ekki lengra en land-
helgin náði og nær í sinni upprunalegu merkingu, þ. e. að yfu>
ráðaréttur íslands á hafinu nái ekki lengra út en „fiskihelgin