Eimreiðin - 01.04.1952, Page 39
eimreiðin
STRAUMAR ISLANDS
111
svokallaða eða sævarbeltið út að fiskimörkunum, sem útlendum
fiskimönnum var bannað að veiða innan við.
Nafnið landhelgi varð til á síðari hluta 19. aldar og merkti
þá aðeins það sævarbelti fram með ströndum landsins, þar sem
útlendingum var stranglega bannað að veiða eða fiska. Það snerti
að öðru leyti alls ekki yfirráðarétt Islands yfir hafinu, og var
allt annarrar merkingar en hugtakið straumar Islands. Að frá-
skilinni fiskveiðinni átti landhelgi ekkert skylt við hugmyndina
um yfirráðarétt íslands eða konungs íslands yfir sjónum og var
á tímum „fiskveiða-“ eða „duggara-málsins" notað alveg „syno-
nymt“ við orðið „fiskihelgi“, og var landhelgi og fiskihelgi notuð
til skiptis og alveg aðgreiningarlaust um hið sama.
Síðast á 19. öld var farið að smeygja hugtakinu „söterritorium"
iun í nafnorðið landhelgi, líklega svo í fyrstu, að menn hafi í
fáfræði sinni farið að þýða „söterritorium“ eða „territorial-
grænse“ með landhelgi, en sem auðvitað hefði átt að leggja út
strauma. En það hefur líklega ráðið hér úrslitum hjá þýðend-
nnum, að í nafninu straumurn hafi þeir fundið erlendan mál-
sem og er, því orðið er erlent, en landhelgi er fagurt ný-
yrði. En merking hugtakanna hefði hér átt að ráða, en ekki
uPpruni orðanna.
Við megum með engu móti slengja orðunum straumum og
landhelgi saman, af því við þurfum á þeim báðum að halda til
tákna gerólík hugtök, landhelgi til að tákna fiskihelgina fram
*neð ströndum landsins, en straum til að tákna yfirráðasvæði
íslands austur á mitt haf, eða hvert sem það nær eða kann að
ná. En þetta tvennt er alls ekki eitt og hið sama á landi hér,
°g Hggja til þess söguleg og veigamikil rök.
Þriðja hugtakinu, sem okkur Islendingum ríður mjög á að
Halda vel aðskildu frá báðum hinum áðurgreindu hugtökum,
landhelgi og straumum Islands, er það hugtakið, sem táknar
6ignarrétt fslendinga yfir hafsvæðinu í grennd við ísland, og fól
a. í sér, og felur enn, eignarrétt fslendinga yfir fiskigrunn-
unum. Þetta hugtak er „almenningur hiS ytrau. Þessu hugtaki
Hefur lítið og raunar alls ekkert verið ruglað saman við hin fyrr-
Uefndu tvö, enda hefur eignarréttur almúgans á íslandi á þessu
hafsvæði staðið mönnum svo ljóslifandi fyrir sjónum um allar
aldir, að samruglun hefur verið ómöguleg. Enda hefur ekkert á