Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1958, Blaðsíða 12

Eimreiðin - 01.04.1958, Blaðsíða 12
84 EIMREIÐIN Mér er ekki fyllilega ljóst hvers vegna þú gekkst ekki menntaveginn, þú hafðir auðvitað nægilega greind til þess, og þar að auki áttir þú fósturföður, sem vel hefði tímt að sjá fyrir nauðsynjum þeim sem námssveinar þarfnast. Ætli það hafi verið tóm fégræðgi sem markaði þér brautina? — Það tekur mörg ár að nema til embættisprófs. Fannst þér þú ekki mega vera að því, enda þó þig hálflangaði til þess? — Eitt er víst, þú byrjaðir snemma að innvinna Jaér peninga og leggja fyrir, lézt J:>ér nægja kvöldskóla og svolitla tímakennslu til þess að efla tölvísi þína og bókhaldsfræði og afreikninga- gerð. Gott og vel, þú ólst upp í búðarholu fóstra þíns og hugur þinn stóð til kaupmennsku — mér þykir sennilegt þú hafir valið hárrétt þegar þú hafnaðir vísindunum og kaust viðskiptin. Já, en hvað þú munt hafa verið efnilegur ungur maður, Baldur Freyr, orðinn vel metinn kaupmaður áður en þér var að fullu vaxin grön, sterkríkur um þrítugt, þegar móðir þín og fóstri féllu frá, auk þess kvæntur þá laglegri konu og hálfsystkini þín komin til manns, svo hvorki hafðir þú af þeim neinar áhyggjur né óhagræði. Hvað svo, Baldur Freyr? — Ég veit það ekki. Ég held þ11 hafir árum saman notið þess hvað þú varst heilsugóður og ríkur, en vafalaust hefur það þó snemma tekið að skyggj3 á hamingju þína, að þér skyldi ekki fæðast afkvæmi. I>ú, sena engan föður hafðir átt, gazt heldur ekki orðið faðir sjálfur. enga ætt skapað þér í landinu, þrátt fyrir ættarnafn þitt af frjósemisguðinum þegið, — það var ekki nema nafnið tómt- Þið höfðuð á orði, hjónin, að taka barn, en það varð ekki úr því, heldur fjölgaði siglingum ykkar til útlanda og fleirl veizlur haldnar hér og þar og fjölbreytni viðskiptanna aukxn» svo skildi konan þín við þig. Hún hafði komizt að því, frU Freys, í umgengni sinni við menntaða menn og listamenn. að hún væri gáfaðri en þú og þú værir ekki annað en ómennt- aður kaupsýslumaður og í þokkabót ónýtur, þess vegna ekki hægt að eiga samleið með þér lengur. Þú gafst hana lausa vitaskuld, Baldur Freyr, svo gáfaðn1 varstu að minnsta kosti, en hvort satt er að hún hafi haft 71
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.