Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1958, Blaðsíða 40

Eimreiðin - 01.04.1958, Blaðsíða 40
Hátíðir dauða o£ lífs á vori eftir Guðmund Sveinsson. Ekkert hefur orkað sterkar á mennina en dauðinn, nema ef vera skyldi ástin, sem er fyrsta einkenni lífs. Frægur herkonungur horfði yfir sveit hraustra og þrótt- mikilla æskumanna. Hann grét. Honum varð til þess hugsað, að innan hundrað ára var öll þessi fríða fylking horfin undir mold. — Rómverjar létu þræl hrópa í eyra sigurvegarans, er hélt innreið í höfuðborgina og mætti fagnaðarópum fjöld- ans. Þrællinn hrópaði: Minnztu þess að þú átt að deyja. — Lífið ber allt hverfleikanum vitni. — Ekki er því að undra að hugur hafi beinzt að dauðanum og þó meir að lífi í dauða. Hver er hlutur lífs er jarðvist lýkur? Elzta svar er: Lífið varir eilíflega í ætt og sögu. Það nægði ei til lengdar. Hugmyndin um laun og refsing annars heims varð næsta svar. Enn urðu skil, er dualisminn tvíhyggjan kom til sögunnar. Líf er tvennu tengt: líkama og sál. Annað er forgengilegt, hitt ekki. Líf í dauða er frábrugðið jarðlífi. Það er gjöf að ofan. Það birt- ist, fæðist í frelsun, afturhvarfi, umturnan sálar, nýrri sköp- un í vitund mannsins. Þessi trú var túlkuð í svo nefndum launhelgum og við þær kennd. í vissum skilningi má einmg telja kristnina launhelgatrú. — Samtíma launhelgatrú var dul- trúin, mystik. Hún gerir engan greinarmun: Jarðlíf er brot eilífðar, í hug er ómælisdjúp, sem speglar alheim, — þar er líf, sem aldrei deyr. — Lífið sjálft er ekki síður gáta. Lengi hefur verið við hana glímt, en hún verður aldrei ráðin. Er það virðingarleysi að játa rökþrot manna? „Maðurinn er skuggi draums,“ segir Pindar, gríska skáldið. Það var eitt sinn talið viturlegast svar við spum um líf. „Sem tómur skuggi gengur maðurinn um, þeir gera háreysti um hégómann einan.“ Sú var lífsskoðun Prédik- arans. — Lífið er harmur. Þá túlkun austursins þekkja allh- Hún er okkur heldur ekki fjarri. Á Vesturlöndum hefur líf'
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.