Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1958, Page 61

Eimreiðin - 01.04.1958, Page 61
EIMREIÐIN 133 Á Emstrujökli. fólki að fara þar um, þar sem sandbleytur og viðsjál jökul- vötn sé tíður farartálmi á þeirri leið. Leitarmenn eru hins vegar kunnugir þar um slóðir, hverjir á sínum afrétti, þótt ckki noti þeir þá leið til ferða milli byggða. Þessu mun þó hafa verið öðruvísi varið á söguöld, og er Njála þar helzt til frásagnar um lýsingu leiðarinnar. Skýrir hún frá því, að bæði Hosi í brennuferð sinni, síðar Kári og eins Sigfússynir hafi allir farið að fjallabaki. í hugmynd söguritara hefur leiðin verið þannig, að farið hafi verið að austan um Sandinn, þ. e. ^íælifellssand, með Eyjafjallajökul á vinstri hönd, en svo var allur Mýrdalsjökull nefndur. Þaðan var haldið í Goðaland °g síðan komið í Þórsmörk. Er þetta eðlileg lýsing leiðar- innar, að undanskildu því, að Goðaland er þama ranglega s!aðsett eftir seinni tíma notkun þessa örnefnis. En vel má það áður hafa verið notað yfir það, sem nú eru kallaðar

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.