Ægir - 01.03.1918, Page 26
62
ÆGIR
setja hana saman, hreinsinálar og 1
varatoppstykki.
c. Áreiðanlegur áttaviti, er sé leiðréttur
árlega aí þeim manni, er félagið
ræður til þess, á kostnað liátseiganda.
d. Ljósker og þokuhorn, er séu svo
úlbúin, sem fyrir er mælt i siglinga-
reglum frá 1907; einnig ilagg.
e. Traust legufæri; þyngd akkera, lengd
og gildleika festar, ákveða virðingar-
menn.
f. Öllum bátum slcal fylgja slökkviá-
hald þeirrar tegundar, sem Samá-
byrgðin tekur gild. Þeir bátar, sem
eru yfir 12 tonn, skulu hafa hraða-
mælir.
g. Bátseigandi er skyldur að tilkynna
félagsstjórninni bréflega, ef formanna-
skit'ti verða á bát hans á vátrygging-
arlimabilinu, og má stjórnin þá nota
rétt sinn til að hafna formanninum,
samkvæmt 12. gr. íélagslaganna.
2. Skyldur jormanna.
a. Formenn skulu nákvæmlega haga
sér eftir siglingareglum 1907. Þeir
skulu og færa stjórniuni sönnur á,
að þeir kunni vel að hagnýta sér
áttavita og kunni nægilega mikið i
siglingareglum til að forðast árekst-
ur. Formenn á þeim bátum, sem
stunda veiðar utan ísafjarðarsýslna,
skulu hafa með sér nægileg sjókort
yfir þá staði, sem þeir sigla á.
b. Formenn skulu vandlega gæta þess,
að báturinn og alt, sem honum á
að fylgja, sé i góðu slandi, og láta
jafnskjótl bæta það er úr sér geng-
ur; bera þeir ábyrgð á allri vanrækslu
sinni i þessu efni, og bæta fyrir, ef
tjón hlýzt af hirðuleysi þeirra eða
handvömm.
e. Þegar bálur brotnar skal formaður
tafarlaust tilkynna það félagsstjórn-
inni, svo skaðinn verði metinn eftir
ráðstöfun hennar, sbr. 15. gr. félags-
laganna. Formaður skal og gæta þess
af fremsta megni, að bjargað sé af
bátnum svo miklu, sem auðið er, á-
samt bátnum sjálfum, og koma þvi
og honum í varðveizlu á öruggum
slað.
d, Formenn á bátum, sem vátrygðir
eru í félaginu, skulu skyldir til að
hjálpa hver öðrum úr háska á sjó.
Borgunar fyrir hjálpina verður eigi
krafist eftir venjulegum björgunar-
reglum, heldur ákveður félagsstjórn-
in hana með hliðsjón af kostnaði og
fjárljóni því, er hjálpin hefir bakað
þeim er veitti. Bátar, sem þarfnast
hjálpar, mega eigi þyggja hjálp ut-
anfélagsbáta gegn bjarglaunum, ef
þeir geta fengið hjálp hjá innanfé-
lagsbátum.
3. Skyldur virðingarmanna.
Virðingarmenn skulu ætið virða báta
á þurru, og vandlega gæta þess, að all
það fylgi bátunum, sem reglugerð þessi
mælir fyrir. — Þeir skulu og lita eftir
i hvaða standi báturinn og vélin er, og
alt það er fylgja á, sérstaklega áttavita
og legufæri. Virðingargerð sina skulu þeir
rita á þar til gerð eyðublöð. Á þeim skal
þess gelið liver formaður sé á bátnum,
og ef nokkuð vantar af þvi, sem bátnum
á að fylgja.
Pannig samþykt á aðalfundi þ. 28. nóv-
ember 1915.
Fvrir hönd sljórnarinnar.
Ó. G. Daviðsson
(féhirðir).