Skinfaxi - 01.05.2009, Blaðsíða 3
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 3
Það er sannkallað Landsmótsár hjá Ung-
mennafélagi Íslands í ár því að haldin verða
tvö Landsmót.
Dagana 9.–12. júlí verður 26. Landsmót
Ungmennafélags Íslands haldið á Akureyri.
Mótið er jafnframt 100 ára afmælismót
Landsmótanna, en fyrsta mótið fór einmitt
fram á Akureyri 17. júní 1909 á Oddeyrar-
túni í blíðskaparveðri. Þetta mót er talið
fyrsta nútíma íþróttamót sem haldið hefur
verið á Íslandi.
Það voru stofnendur Ungmennafélags
Akureyrar, með þá Lárus Rist sundkennara
og Jóhannes Jósefsson glímukappa í broddi
fylkingar, sem áttu hugmyndina að þessu
fyrsta íþróttamóti og var markmiðið að efla
íþróttaáhuga æskulýðsins.
UMFÍ er það sannur heiður að fá að halda
100 ára afmælismót Landsmótanna á Akur-
eyri. Það eru UFA og UMSE, með stuðningi
Akureyrarbæjar, sem sjá um skipulagningu
og framkvæmd mótsins.
Umgjörð Landsmótsins er hin glæsileg-
asta og er vandað vel til verka. Mikil upp-
bygging hefur átt sér stað og stórglæsileg
íþróttamannvirki blasa við sem notuð verða
um ókomin ár af íbúum og gestum.
Akureyri er enn eitt sveitarfélagið í hópi
sveitarfélaga sem hafa byggt upp íþrótta-
mannvirki í tengslum við Landsmót UMFÍ
og gjörbreytt þannig aðstöðu fólks til
æfinga og keppni.
Keppt verður í fjölmörgum íþróttagrein-
um og í fyrsta skipti verður boðið upp á
keppni í maraþoni á Landsmóti. Auk íþrótta-
keppninnar verður boðið upp á fjölbreytta
menningardagskrá víðs vegar um bæinn
og fyrirlestrar um heilsutengd málefni verða
í boði m.a. í Háskólanum.
Um verslunarmannahelgina verður 12.
Unglingalandsmót UMFÍ haldið á Sauðár-
króki í umsjón Ungmennasambands Skaga-
fjarðar og Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Er
þetta í annað sinn sem mótið er haldið þar,
en Skagfirðingar héldu Unglingalandsmót
UMFÍ 2004 sem þótti takast vel.
Unglingalandsmótin hafa vakið verð-
skuldaða athygli og hafa fyrir löngu sannað
gildi sitt. Það var stórt gæfuspor stigið
þegar ungmennafélagshreyfingin ákvað að
halda mótin árlega og ætíð um verslunar-
mannahelgi. Mótin eru án efa skynsamleg-
asta og skemmtilegasta fjölskyldu-, íþrótta-
og forvarnahátíð sem hægt er að hugsa sér
um verslunarmannahelgi þar sem þau eru
áfengis- og vímuefnalaus. Mót þar sem ungl-
ingar og íþróttir eru í fyrirrúmi og stórfjöl-
skyldan getur tekið þátt.
Undanfarin ár hafa skilaboð til fjölskyldna
um að verja meiri tíma saman verið áber-
andi, einkum í kringum atburði þegar lík-
legt er að unglingar neyti áfengis eða ann-
arra vímuefna. Foreldrar hafa tekið þessum
skilaboðum vel en líka unglingarnir sem
Landsmótsár
Formaður UMFÍ: Helga Guðrún Guðjónsdóttir
virðast vilja verja meiri tíma með sínum
nánustu.
Umhyggja og hlýja frá fjölskyldunni er
grundvöllur velferðar barna og unglinga
og dregur mjög úr líkum á því að unglingar
velji að fikta við að reykja, nota áfengi eða
önnur vímuefni. Samverustundir fjölskyld-
unnar eru því ómetanlegar.
Það er mitt mat að foreldrar velji í síaukn-
um mæli að verja verslunarmannahelginni
með börnum sínum á Unglingalandsmóti
UMFÍ. Um það vitnar sá mikli fjöldi sem
sækir mótin árlega. Fyrir UMFÍ er þetta
viðurkenning á því að þjóðin er sammála
UMFÍ um að hægt er að halda áfengis- og
vímuefnalausa hátíð um þessa stærstu
ferðahelgi landsmanna.
Umgjörð Unglingalandsmótsins á Sauð-
árkróki er hin glæsilegasta og góð íþrótta-
mannvirki og aðstaða eru til staðar.
Stór hópur sjálfboðaliða kemur að báðum
mótunum sem gerir alla undirbúnings-
vinnu og framkvæmd þeirra mögulega.
Þetta fórnfúsa og mikla starf sjálfboðaliðans
gerir það að verkum að öll umgjörð og
undirbúningur mótanna er eins glæsileg
og raun ber vitni ásamt góðu samstarfi við
sveitarfélögin.
Ríkisvaldið hefur stutt vel við uppbygg-
ingu og framkvæmd á Landsmótum og
Unglingalandsmótum í gegnum tíðina og
fyrir þann góða stuðning erum við ákaflega
þakklát.
Verið öll hjartanlega velkomin á Lands-
mót og Unglingalandsmót UMFÍ í sumar.
Fram undan eru skemmtilegir dagar, með
fjölbreyttri dagskrá sem við njótum þess að
taka þátt í.
Við hlökkum til að sjá þig og fjölskyldu
þína.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir
formaður UMFÍ
Helga Guðrún
Guðjónsdóttir,
formaður UMFÍ.