Skinfaxi - 01.05.2009, Blaðsíða 4
4 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Íþróttabandalag Siglufjarðar, ÍBS,
og Ungmenna- og íþróttasamband
Ólafsfjarðar, UÍÓ, runnu saman í
Ungmenna- og íþróttasamband
Fjallabyggðar á fjölmennum stofn-
fundi 25. maí. Sameiningarfundur-
inn var haldinn í Íþróttamiðstöðinni
á Hóli. Fulltrúar Ungmennafélags
Íslands voru Sæmundur Runólfsson,
framkvæmdastjóri UMFÍ, og Helgi
Gunnarsson, fjármálastjóri UMFÍ.
Skammstöfun hins nýja félags er
UÍF. Tilgangur þess er meðal annars að
vinna að eflingu, samræmingu og
skipulagningu íþróttastarfsemi í Fjalla-
byggð.
Starfsstjórn var kosin til eins árs og
er hún svo skipuð: Guðný Helgadóttir,
formaður, Jón Konráðsson, Þórarinn
Hannesson, Guðmundur Garðarsson,
Björn Þór Ólafsson, Gíslína Salmanns-
dóttir og Hlynur Guðmundsson.
Undirbúningsvinna hófst
fyrir tveimur árum
„Það var ljóst að í þessa sameiningu
stefndi þegar sveitarfélögin sameinuð-
ust. Fljótlega upp úr því voru línurnar
lagðar og hin eiginlega vinna hófst
fyrir um tveimur árum. Verulegur skrið-
ur komst á sameiningarvinnuna á
haustdögum sem lauk að lokum með
sameiningu 25. maí,“ sagði Guðný
Helgadóttir, formaður hins nýstofnaða
Ungmenna- og íþróttasambands
Fjallabyggðar, í samtali við Skinfaxa.
Gefur góð tækifæri
Guðný sagði að þessi sameining
gæfi góð tækifæri enda væri rík íþrótta-
hefð á þessu svæði og sterkir einstakl-
ingar.
„Við eigum ennfremur mjög duglega
krakka og fjölbreytileikinn í íþrótta-
lífinu er mikill. Eftir þessa sameiningu
stöndum við sterkari og við erum
mjög bjartsýn á framtíðina. Nú hefst
vinna við að slípa þetta betur saman
og við verðum öll að vinna saman að
þessu. Það er hugur í félögunum og nú
er farið að huga að sameiningu þeirra í
þessu nýja ungmenna- og íþróttasam-
bandi,“ sagði Guðný Helgadóttir.
Stjórn UÍF fyrir utan
íþróttamiðstöðina á Hóli.
Ungmenna- og íþrótt asamband Fjallabygg ðar stof nað:
Eftir þessa sameiningu
stöndum við sterkari
Frá stofnfundi Ungmenna- og
íþróttasambands Fjallabyggðar.