Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.05.2009, Side 8

Skinfaxi - 01.05.2009, Side 8
8 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands „Svona heilt yfir finnst mér undirbúning- ur hafa gengið vonum framar. Við viss- um í rauninni ekki almennilega að hverju við gengjum. Fólkið, sem valdist í lands- mótsnefndina, er viljugt og gott til verka, kann þetta allt saman og leggur sig mikið fram. Það hefur hjálpað gríðarlega í öll- um þáttum undirbúningsins. Svo fengum við líka ágætis viðtökur frá þeim sem við leituðum til varðandi fjárstuðning við mótshaldið. Þegar þetta er allt lagt saman getum við ekki annað en verið sáttir miðað við það í hvaða árferði sem við erum að standa í þessu,“ sagði Kristján Þór Júlíusson, alþingismaður og formaður landsmótsnefndar á Akureyri. Landsmótið á eftir að setja skemmtilegan svip á bæinn Íþróttavöllurinn er mikið mannvirki Kristján Þór var inntur eftir því hvernig honum litist á uppbygginguna sem ráð- ist hefði verið í vegna Landsmótsins. Sagði hann tími hefði verið kominn til að búa til aðstöðu fyrir frjálsar íþróttir. „Það er gott að frjálsíþróttafólkið hér norðan heiða er núna að fá fyrsta flokks aðstöðu til að iðka íþrótt sína. Það var bara einfaldlega kominn tími á það og kannski löngu tímabært, en þolinmæðin hefur unnið með því fólki. Þessi aðstaða verður vonandi einnig til þess að þær greinar sem þar undir eiga fara að blómstra að nýju. Völlurinn er mikið mannvirki og mikið lagt í hlutina og þá er um að gera að nýta það sem best,“ sagði Kristján Þór. Kristján Þór Júlíusson, formaður landsmótsnefndar: Nýja stúkan við íþróttavöllinn við Hamar er mikið mann- virki. Akureyri

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.