Skinfaxi - 01.05.2009, Síða 15
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 15
100
ára sögu-
sýning
Lands-
mótanna
Í tengslum við Landsmót UMFÍ á
Akureyri í sumar verður sett upp
sögusýning á Amtsbókasafninu á
Akureyri um sögu Landsmótanna í
hundrað ár.
Uppistaðan í sýningunni er sögu-
sýning sem var sett upp í tengslum
við Landsmótið í Kópavogi fyrir
tveimur árum, en þá var minnst eitt
hundrað ára afmælis Ungmenna-
félags Íslands. Til viðbótar þeirri
sýningu verður minnst sérstaklega
þeirra Landsmóta sem hafa farið
fram á Akureyri – árin 1909, 1955
og 1981.
Sýningin, sem er hönnuð af Birni
G. Björnssyni/List & Sögu ehf. í
Reykjavík, verður opnuð laugar-
daginn 4. júlí og mun hún standa
fram yfir verslunarmannahelgi.
Auk sögulegra heimilda um
Landsmótin í hundrað ár er gert
ráð fyrir að Héraðsskjalasafnið á
Akureyri sýni skjöl og önnur gögn
um íþróttasögu Akureyrar.
1. Landsmót UMFÍ á
Akureyri 17. júní 1909
Ungmennafélag Akureyrar stóð fyrir
mótinu fyrir hönd Fjórðungssambands
Norðlendingafjórðungs á fæðingardegi
Jóns Sigurðssonar 17. júní. Margar ræður
voru fluttar. Stefán Stefánsson skólameist-
ari flutti erindi um Jón Sigurðsson, Karl
Finnbogason talaði fyrir Ísland. Stein-
grímur Matthíasson læknir flutti erindi um
Íslendinga og séra Matthías Jochumsson
talaði fyrir æskulýðnum. Einnig talaði
Guðlaugur Guðmundsson fyrir æsku-
lýðnum.
Fjöldi manns fylgdist með íþróttunum
af áhuga allan daginn. Keppt var í flokka-
glímu (5 þyngdarflokkum), hástökki,
langstökki, stangarstökki, 100 m hlaupi
drengja og fullorðinna, kappgöngu og
100 m og 50 m sundi. „Knattleik eða
knattspark“ léku 11 Húsvíkingar og 11
Akureyringar og sigruðu þeir síðarnefndu
með 1: 0. Íþróttakeppnin tókst vel og var
þátttakendum til hins mesta sóma.
Þennan sama dag var 4. Íslandsglíman
eða glímukeppnin um belti Grettisfélags-
ins háð á Akureyri og voru keppendur
þrettán að tölu. Efstu sætin skipuðu tveir
ungir menn er höfðu komið til keppninn-
ar frá Reykjavík. Guðmundur Stefánsson
sigraði (12 vinningar), Sigurjón Pétursson
varð annar (11), en þriðji varð Pétur Jóns-
Fyrri Landsmót á Akureyri
son, Gautlöndum (9). Keppendur mótsins
voru 55 talsins en mótsgestir um 1500.
9. Landsmót UMFÍ á
Akureyri 2.–3. júlí 1955
Mótið var haldið dagana 2.–3. júlí undir
stjórn UMSE. Keppt var í sjö greinum
starfsíþrótta, handknattleik kvenna og
glímu. Þá var keppt í átta sundgreinum
og átján greinum frjálsíþrótta. Fyrri dag-
inn var íþróttakeppni allt til kvölds, en þá
hófst útifundur og umræðuefni hans var:
Félagslíf og menning. Þá var stiginn dans.
Síðari daginn var íþróttakeppni um
morguninn. Eftir hádegi hófst hátíðar-
dagskrá með guðsþjónustu, en síðan
voru fjölbreytt skemmtiatriði, ræðuhöld,
söngur og upplestur ljóðskálda. Þá hófst
íþróttakeppni að nýju, en að henni lokinni
voru verðlaun afhent. Héraðssambandið
Skarphéðinn hafði yfirburði, hlaut 234
stig samtals og sigraði bæði í frjálsum
íþróttum og sundi. Stefán Árnason, UMSE,
var stigahæsti einstaklingur mótsins, en
hann hlaut 17 stig. Sigríður Vigfúsdóttir,
HSK, var stigahæst kvenna með 13 stig.
Mótsgestir voru 4.000 að tölu en kepp-
endur töldust 263.
17. Landsmót UMFÍ á
Akureyri 10.–12. júlí
1981
Ungmennasamband Eyjafjarðar sá um
framkvæmd mótsins sem fram fór dagana
10.–12. júlí. Keppendur voru 842 talsins
frá 23 sambandsaðilum. Keppt var í 10
greinum, þ.e. frjálsum íþróttum, starfs-
íþróttum, knattspyrnu, sundi, blaki, körfu-
knattleik, handknattleik kvenna, júdó,
glímu, borðtennis og skák. Auk þeirra
var keppt í þremur sýningargreinum,
siglingum, fimleikum og lyftingum. Alls
tóku 280 þátt í sýningum á mótinu.
Heiðursgestur mótsins var Vilhjálmur
Hjálmarsson, fyrrverandi menntamála-
ráðherra, og flutti hann hátíðarræðu.
Forseti Íslands, Vigdís Finnbogadóttir, var
viðstödd setningarathöfn mótsins.
Veður var gott alla dagana og er talið
að um 10 þúsund manns hafi sótt mótið.
HSK sigraði í heildarstigakeppninni, hlaut
alls 396,5 stig. UMSK hlaut 236,5 stig og
ÚÍA 173 stig.
Flest stig í sundi kvenna fékk Sonja
Hreiðarsdóttir, 18 stig, og í sundi karla
Tryggvi Helgason 18. Jón Diðriksson hlaut
flest stig karla í frjálsum íþróttum, 18
stig, en Hrönn Guðmundsdóttir í kvenna-
greinum, 14 stig.
Akureyri