Skinfaxi - 01.05.2009, Blaðsíða 23
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 23
„Hér eru menn mjög sjóaðir í að undir-
búa mót af þessu tagi enda stutt síðan að
hér voru haldin tvö landsmót með nokk-
urra vikna millibili. Við búum að þessari
reynslu og erum vel í stakk búin til að taka
þetta mót að okkur. Það verður spenn-
andi að taka á móti öllum þeim fjölda
sem kemur til með að sækja mótið,“
sagði Guðmundur Guðlaugsson, sveit-
arstjóri í Skagafirði, í spjalli við Skinfaxa.
Hér er allt til alls
Guðmundur sagði að strax hefði vakn-
að áhugi í bæjarfélaginu að sækja um að
halda mótið eftir að Grundfirðingar hættu
við vegna efnahagsástandsins.
„Hér var allt til alls og þegar í ljós kom
að við hrepptum mótið var okkur ekkert
að vanbúnaði og undirbúningur hófst af
fullum krafti. Við vorum afar stolt yfir að
hafa fengið mótið og ætlum að leggja
okkur fram í að halda gott mót.“
Guðmundur sagði íþróttaleikvanginn
kláran en aðeins hefði þurft að mála
hlaupabrautirnar að nýju. Allt annað væri
til staðar og aðstaðan fyrsta flokks.
Mikill áhugi á frjálsum
Íþróttaáhugi hefur alltaf verið mikill í
Skagafirðinum og þaðan hafa komið
íþróttamenn í fremstu röð. Guðmundur
sagði að uppbygging, sem varð í kring-
Við erum afar stolt að hafa fengið mótið hingað
um landsmótin 2004, hefði tvímælalaust
ýtt enn meira undir áhuga á frjálsum
íþróttum og á fleiri íþróttagreinum.
Glæsileg uppbygging
„Eins og allir vita hefur átt sér stað
glæsileg uppbygging samhliða Unglinga-
landsmótunum og hún ein og sér skilar
sér svo sannarlega inn í framtíðina,“
sagði Guðmundur.
– Það hlýtur að vera mikill akkur fyrir
sveitarfélagið að fá svona mót til sín?
„Það er ekki nokkur spurning. Við
erum tilbúin til þess og ætlum að gera
það eins vel og hægt er. Það skiptir mestu
að undirbúningur sé góður og hér eru
margir tilbúnir að leggja lóð á vogarskál-
arnar. Öll íþróttaiðkun ungs fólks eflir það
til dáða til framtíðar litið.
Ég bíð spenntur
Unglingalandsmótin eru innlegg í það
að efla unga fólkið en þessi mót hafa svo
sannarlega sannað gildi sitt. Ég bíð
spenntur eftir mótinu en ég hef aldrei
sótt svona mót áður. Mín börn voru
meira í keppnisíþróttum á borð við
knattspyrnu þannig að ég bíð spenntur
eftir Unglingalandsmótinu í sumar.“
Guðmundur sagði tilhlökkun mikla á
meðal bæjarbúa enda verkefnið mjög
spennandi.
Guðmundur Guðlaugsson,
sveitarstjóri í Skagafirði: