Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.05.2009, Qupperneq 24

Skinfaxi - 01.05.2009, Qupperneq 24
24 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Þann 30. apríl síðastliðinn var í þjónustu- miðstöð UMFÍ skrifað undir styrktarsamn- inga við fjögur fyrirtæki vegna 12. Ungl- ingalandsmóts Ungmennafélags Íslands sem haldið verður á Sauðárkróki dagana 31. júlí til 2. ágúst í sumar. Samningar við styrktaraðila undirritaðir Fulltrúar fyrirtækjanna sem verða styrktaraðilar 12. Unglingalandsmóts UMFÍ á Sauðárkróki í sumar. Efri röð f.v.: Örvar Guð- mundsson, Prentmeti, Guð- mundur Guðmundsson, Prentmeti, Júlíus Jónsson, Vífilfelli, Þórmundur Jónatansson, Landsbank- anum, Jóhannes Ásbjörns- son, Landsbankanum. Neðri röð f.v.: Þórhildur Rún Guðjónsdóttir, Síman- um, Helga Guðrún Guðjóns- dóttir, formaður UMFÍ, og Margrét Stefánsdóttir, Símanum. Aðalstyrktaraðilar Unglingalandsmóts- ins eru Síminn, Vífilfell, Landsbankinn og Prentmet. Við undirskriftina vildi Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, koma á framfæri þakklæti til styrktaraðilanna og óskaði þess í leiðinni að samningurinn yrði einnig ávinningur fyrir styrktaraðilana sjálfa. Fulltrúar styrktaraðilanna lýstu yfir mikilli ánægju með samstarfið sem bæri vott um að forsvarsmenn fyrirtækjanna vildu leggja æskulýðs- og íþróttastarfi lið. Vel heppnað dómara- námskeið í tengslum við Unglingalandsmót á Sauðárkróki Í vor var haldið dómaranámskeið í frjáls- íþróttum á Sauðárkróki, m.a. vegna Ungl- ingalandsmóts UMFÍ sem þar verður haldið í sumar. Námskeiðið fór fram bæði með fyrirlestrum og heimsókn á íþrótta- völlinn, þar sem gerð var úttekt á aðstæð- um. Gert er ráð fyrir að þörf verði fyrir um 100 starfsmenn við frjálsíþróttakeppni mótsins. Leiðbeinandi á námskeiðinu var Birgir Guðjónsson, formaður tækninefnd- ar Frjálsíþróttasambands Íslands. Um 20 einstaklingar sóttu námskeiðið sem var mjög vel heppnað í alla staði. Hluti þátttakenda á dómaranámskeið- inu sem haldið var á Sauðárkróki. Sauðárkrókur

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.