Skinfaxi - 01.05.2009, Síða 27
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 27
UMSS er mótshaldari 12. Unglinga-
landsmóts UMFÍ sem haldið verður
dagana 31. júlí til 2. ágúst í sumar.
UMSS stendur fyrir Ungmennasam-
band Skagafjarðar, en það var stofnað
árið 1910. Tíu félög eru innan vébanda
UMSS og er starfsemi þeirra fjölbreytt.
Sigurjón Þórðarson er formaður UMSS
og sagði í samtali við Skinfaxa óneitan-
lega í mörg horn að líta fyrir mótið.
Allir hafa lagst á eitt
„Það er búið að vera bara gaman að
undirbúa mótið. Við fengum mótið til
okkar nokkuð óvænt en það hafa allir
lagst á eitt í undirbúningsferlinu og svona
heilt yfir hafa hlutirnir gengið vel fyrir sig.
Það skiptir máli í svona vinnu að virkja
fólk strax og fá það í lið með sér. Eins og
flestir vita er aðstaðan hér á Króknum til
fyrirmyndar þannig að undirbúningurinn
er með öðrum hætti en ef ráðist hefði ver-
ið í framkvæmdir. Það er jákvæð stemn-
ing í bænum og allir tilbúnir að leggja eitt-
hvað af mörkum,“ sagði Sigurjón.
„Maður fann fyrir miklum áhuga að fá
mótið hingað, allir voru svo jákvæðir. Við
erum vel í sveit settir með að halda mótið
hér á Sauðárkróki. Aðstaðan er saman-
þjöppuð en stuttar vegalengdir eru á
milli tjaldsvæðisins og helstu íþrótta-
mannvirkja. Þetta er afar góður kostur að
Að fara á Unglingalandsmót
er upplifun og mikil stemning
Sigurjón Þórðarson, formaður
Ungmennasambands
Skagafjarðar:
mínu mati. Að koma að svona móti er
mikill skóli og um leið mjög gefandi.“
Koma alltaf á óvart
Sigurjón segir upplifun sína á Unglinga-
landsmótunum vera góða. Þetta séu í einu
orði sagt frábær mót sem gefi öllum sem
á þau fara mikla möguleika.
„Ég hef farið á nokkur Unglingalands-
mót og þau koma manni alltaf ánægju-
lega á óvart. Ég mæli hiklaust með því að
krakkar taki þátt í mótinu og njóti þess
um leið að vera með foreldrum sínum.
Aðalatriðið í mínum huga er að taka þátt
og vera með. Sigur í einhverjum greinum
skiptir ekki máli.“
Fjölskyldan saman
– Af hverju hafa Unglingalandsmótin
slegið í gegn að þínu mati?
„Að skreppa á Unglingalandsmót er
mikil upplifun og stemning fyrir krakk-
ana og raunar alla. Þarna hitta krakkar
jafnaldra sína og vini í góðu umhverfi.
Það segir sína sögu að sömu fjölskyldurn-
ar koma á mótin ár eftir ár. Um stærstu
ferðahelgi ársins er stórkostlegt að
fjölskyldan eyði helginni saman,“ sagði
Sigurjón.
Sigurjón sagði af ýmsu að taka í undir-
búningi fyrir mótið og margir fundir
hefðu verið haldnir í unglingalandsmóts-
nefndinni. Fyrir einum fundinum í sumar
lágu 30 atriði sem þurfti að skoða og
taka ákvörðun um.
Bjartsýn og hlökkum til
„Við erum að taka á móti gríðarlegum
fjölda fólks og því þurfa hlutirnir að vera
í sem bestu lagi. Það þarf að huga að
mörgum þáttum því að mikið er að gerast
á mótinu á sama tíma. Hinu má ekki
gleyma að ungmennafélagshreyfingin
býr yfir mikilli reynslu hvað þessi mót
áhrærir. Menn eru ekki á upphafsreit
heldur er alltaf verið að byggja ofan á
reynslu fyrri ára,“ sagði Sigurjón.
„Við erum mjög bjartsýn og hlökkum
mikið til mótsins. Aðalatriðið verður að fá
gott veður og ef það gengur eftir smellur
þetta allt saman. Það kæmi mér ekki á
óvart að hingað myndu koma ekki færri
en tíu þúsund manns og að keppendur
yrðu um 1000 talsins.“
Sigurjón sagðist líka vilja hvetja fólk til
að fjölmenna á Landsmótið á Akureyri
dagana 9.–12. júlí í sumar.
„Við ætlum að virkja fólk á Sauðárkróki
og í Skagafirði til að fara með nokkuð
þétta sveit á Landsmótið. Það er líka mót
sem við viljum hafa í heiðri,“ sagði Sigur-
jón Þórðarson, formaður UMSS, að lokum
í spjallinu við Skinfaxa.