Skinfaxi - 01.05.2009, Blaðsíða 28
28 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
1. Unglingalandsmót UMFÍ
var haldið á Dalvík 10.–12. júlí 1993.
Mótið, sem haldið var á vegum UMSE,
tókst vel í alla staði og var þá alveg ljóst
að mótshaldið var komið til að vera.
Fyrirmyndarfélag mótsins var HHF.
2. Unglingalandsmót UMFÍ
var haldið á Blönduósi dagana 14.–16.
júlí 1995, á vegum USAH. Fyrirmyndar-
félag mótsins var UNÞ.
3. Unglingalandsmót UMFÍ
var haldið í Grafarvogi 1998, á vegum
Ungmennafélagsins Fjölnis. Fyrirmyndar-
félag mótsins var HSH.
4. Unglingalandsmót UMFÍ
var haldið í Vesturbyggð/Tálknafirði árið
2000, á vegum HHF. Mótið markaði skil í
sögu mótanna því að það var haldið um
verslunarmannahelgina í fyrsta skipti.
Þetta var á þeim tíma umdeild ákvörðun
en sagan hefur kennt okkur að þetta var
afar farsælt skref í sögu mótanna. Fyrir-
myndarfélag mótsins var UMSS.
5. Unglingalandsmót UMFÍ
var haldið í Stykkishólmi um verslunar-
mannahelgina 2002, á vegum HSH. Fyrir-
myndarfélag mótsins var USVS.
6. Unglingalandsmót UMFÍ
var haldið á Ísafirði um verslunarmanna-
helgina 2003, á vegum HSV. Fyrirmyndar-
félag mótsins var HSÞ. Á þessu móti var
tekin sú ákvörðun að hækka aldursmörk
mótsins upp í 18 ár í stað 16 áður. Á þingi
UMFÍ eftir mótið var ákveðið, með mikl-
um meirihluta atkvæða, að halda mótið
árlega, um verslunarmannahelgina.
Unglingalandsmótin frá upphafi
7. Unglingalandsmót UMFÍ
var haldið á Sauðárkróki 2004, á vegum
UMSS. Fyrirmyndarfélag mótsins var
HSK. Þetta var í fyrsta skipti sem Ungl-
ingalandsmót var haldið á sama stað og
Landsmót UMFÍ.
8. Unglingalandsmót UMFÍ
var haldið í Vík í Mýrdal 2005, á vegum
USVS. Fyrirmyndarfélag mótsins var HSK.
Mótið tókst í alla staði mjög vel og er
talið að um sjö þúsund gestir hafi sótt
mótið í blíðskaparveðri.
9. Unglingalandsmót UMFÍ
var haldið á Laugum í Þingeyjarsýslu
2006, á vegum HSÞ. Mótið fór mjög vel
fram í ágætu veðri. Keppendur og gestir
á mótinu voru þegar best lét um 10.000.
10. Unglingalandsmót UMFÍ
var haldið á Höfn í Hornafirði 2007. Um
1.000 keppendur tóku þátt í mótinu en
talið er að 7–8 þúsund gestir hafi sótt
mótið. Veður var milt og gott alla keppn-
isdagana. Eftir þingsetningarathöfnina
var afhjúpaður vatnspóstur en hann var
gjöf UMFÍ til Hornfirðinga í tilefni 100 ára
afmælis hreyfingarinnar. Fyrirmyndar-
félag mótsins var HSH.
11. Unglingalandsmót UMFÍ
var haldið í Þorlákshöfn 2008, á vegum
HSK. Setningarathöfnin var mjög glæsi-
leg, stillt og þurrt veður og stemningin
einstök. Mikið fjölmenni var við loka-
athöfnina og mörg þúsund áhorfendur
nutu stundarinnar. Helga Guðrún Guð-
jónsdóttir, formaður UMFÍ, flutti kepp-
endum og gestum kveðju og þakkaði
framkvæmdaaðilum fyrir frábært og
framúrskarandi framtak. Það var sam-
dóma álit manna að vel hefði tekist til,
umgjörð mótsins einstök. Gestir mótsins
voru um tíu þúsund og hafa aldrei verið
fleiri í sögu Unglingalandsmótanna. HSH
var fyrirmyndarfélag mótsins.
Sauðárkrókur
Starfsmenn
Unglingalands-
mótsins á
Sauðárkróki
Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmda-
stjóri (til vinstri) og Hjalti Þórðarson
verkefnastjóri.