Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.05.2009, Page 34

Skinfaxi - 01.05.2009, Page 34
34 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Samráðsfundur UMFÍ á Akureyri Samráðsfundur Ungmennafélags Íslands var haldinn á Akureyri 9. maí sl. Stjórnarfundur UMFÍ var haldinn á föstu- dagskvöldið og fram haldið á laugarrdags- morgni fram að hádegi. Eftir hádegi á laugardeginum hófst fundur með fulltrú- um héraðssambanda og félaga með beina aðild. Alls sóttu um 50 fulltrúar fundinn. Farið var vítt og breitt um sviðið og Skemmtilegar umræður á samráðsfundi voru umræður gagnlegar og fræðandi. Fjallað var um mál sem efst eru á baugi í hreyfingunni og spunnust um það skemmtilegar umræður. Umræða fór fram um framtíð Lands- mótanna. Þar kynntu sambandsaðilar svör sín við spurningum sem sendar höfðu verið út fyrir fundinn. Ennfremur fór fram kynning á Landsmótinu sem www.ganga.is haldið verður á Akureyri í sumar og á Unglingalandsmótinu á Sauðárkróki. Anna R. Möller, forstöðumaður Evrópu unga fólksins, hélt kynningu á verkefn- inu og sagði frá styrkveitingum þess. Í lok fundarins var skoðunarferð um mótssvæði Landsmótsins á Hamarssvæð- inu, en undirbúningur á svæðinu er í full- um gangi. Samráðsfundur UMFÍ var hald- inn á Hótel KEA á Akureyri.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.