Skinfaxi - 01.05.2009, Blaðsíða 36
36 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Ungmennafélagið Afturelding
varð 100 ára þann 11. apríl sl. Þann
22. apríl var haldið upp á aldarafmæl-
ið með sérstakri hátíðardagskrá.
Við það tækifæri færði Helga
Guðrún Guðjónsdóttir, formaður
Ungmennafélags Íslands, félaginu
gjafir og sæmdi Sigurð Guðmunds-
son, íþróttafulltrúa Mosfellsbæjar,
gullmerki UMFÍ. Jón Pálsson, for-
maður Aftureldingar, og Svava Ýr
Baldvinsdóttir voru sæmd starfs-
merki UMFÍ.
Á afmælisdaginn sjálfan hélt
stjórn Aftureldingar opinn hátíðar-
stjórnarfund þar sem opnað var bréf
sem þáverandi stjórn sendi inn í
framtíðina fyrir fimmtíu árum.
Núverandi stjórn skrifaði og innsigl-
aði nýtt bréf sem ætlunin er að verði
opnað að öðrum fimmtíu árum
liðnum, á 150 ára afmæli félagins
árið 2059.
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar kom
Aftureldingarfólki á óvart og lét, í
tilefni aldarafmælisins, útbúa og
setja upp minnismerki við Lágafells-
kirkju, á þeim stað sem Afturelding
var stofnuð. Minnismerkið var
afhjúpað að loknum stjórnarfund-
inum.
Í dag telur félagið um 3800 félags-
menn. Um 1200 iðkendur æfa og
keppa á vegum félagsins í 10 deild-
um. Starfsmenn aðalstjórnar eru
tveir en yfir 40 þjálfarar og aðrir
starfsmenn starfa innan deilda félags-
ins. Hátt í 100 sjálfboðaliðar starfa
fyrir Aftureldingu í stjórnum og
nefndum.
Ungmennafélagið