Skinfaxi - 01.11.2009, Blaðsíða 8
8 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Skinfaxi 100 ára
Kveðja frá mennta– og menningarmálaráðherra, Katrínu Jakobsdóttur:
Ungmennafélagshreyfingin kann að
meta metnaðarfulla útgáfu
Frá því segir í Gylfaginningu að sonur
Nætur hafi verið Dagur. Alfaðir hafi gefið
þeim mæðginum tvo hesta og tvær kerrur
„og setti þau upp á himin, að þau skulu
ríða á hverjum tveim dægrum umhverfis
jörðina. Ríður Nótt fyrri þeim hesti er kall-
aður er Hrímfaxi, og að morgni hverjum
döggvir hann jörðina með méldropum
sínum. Sá hestur er Dagur á heitir Skinfaxi
og lýsir allt loft og jörðina af faxi hans.“
Það er vel viðeigandi að málgagn Ung-
mennafélags Íslands í 100 ár beri heiti
þessa hests sem lýsir allt loft og jörð.
Í rúma eina öld hefur ungmennafélags-
hreyfingin haft mikil áhrif á sögu Íslands.
UMFÍ var stofnað á árum mikils umróts
og breytinga í íslensku samfélagi. Mikil
félagsmálavakning var í landinu á þess-
um árum og áhugi á þessum nýju sam-
tökum mikill, þau báru ferskan blæ inn í
samfélagið. UMFÍ stóð fyrir málfundum
þar sem ungir og aldnir tjáðu sig um þau
mál er efst voru á baugi. Strax varð mikil
þátttaka í starfi samtakanna.
UMFÍ lét sig þjóðfélagsmál varða. Sam-
tökin hvöttu til þess að byggðar væru
sundlaugar og samkomuhús, fylltu síðan
þær byggingar lífi og fjöri sem náði langt
út fyrir eiginlegar íþróttir því ungmenna-
félögin voru einnig menningar- og þjóð-
málafélög. Fyrir samtök, sem sinna jafn
fjölbreyttu starfi og UMFÍ, er nauðsyn að
eiga sér öflugt málgagn.
Skinfaxi, tímarit UMFÍ, hóf göngu sína
árið 1909 og hefur komið út óslitið síðan.
Það er ánægjulegt að á tímum mikilla
framfara í hvers konar rafrænni upplýs-
ingamiðlun skuli Skinfaxi hafa staðið af
sér alla storma sem farið hafa um sam-
félagið. Það ber vott um að vel sé staðið
að verki og að félagar Ungmennafélags-
hreyfingarinnar kunni að meta þessa
metnaðarfullu útgáfu.
Ég vil þakka UMFÍ fyrir glæsilegt starf í
þágu barna og ungmenna á þessu ári og
Skinfaxa óska ég til hamingju með eitt
hundrað ára útgáfuafmæli.
„Tímarit á borð við Skinfaxa er nauð-
synlegt hreyfingunni. Blaðið hefur ákveð-
ið útbreiðslugildi og segir vel frá starfinu
sem þar er innt af hendi. Blaðið sem slíkt
er fínt að mínu mati,“ sagði Sigurbjörn
Árni Arngrímsson, dósent við Íþrótta-
fræðasetur Háskóla Íslands að Laugar-
vatni. Sigurbjörn þarf vart að kynna, hann
er ungmennafélagi frá blautu barnsbeini
og hefur getið sér gott orð á hlaupabraut-
inni og ekki síst fyrir líflegar lýsingar frá
frjálsíþróttamótum í ríkissjónvarpinu.
Sigurbjörn Árni Arngrímsson, dósent og frjálsíþróttamaður:
Blaðið hefur ákveðið útbreiðslugildi
Sigurbjörn Árni
Arngrímsson.
Sigurbjörn Árni hefur keppt undir
merkjum HSÞ síðan 2006 en hann er
fæddur og uppalinn í félaginu. Á árunum
1997–2001 fyrir HSK og frá 2002 til 2005
fyrir UMSS.
Sigurbjörn Árni sagði ekki mörg 100
ára gömul blöð á Íslandi. Hann sagði það
aðeins segja eitt, að vel hafi verið staðið
að hlutunum við útgáfuna og hreyfingin
lagt áherslu á að koma blaðinu út.
„Það er talvert þrekvirki að hafa haldið
blaðinu úti í allan þennan tíma. Það hef-
ur verið metnaður hreyfingarinnar að
hlúa að útgáfunni og má segja að henni
hafi tekist vel til í þeim efnum. Ég hef
lesið Skinfaxa í mörg ár og þar get ég
fylgst með því hvað er að gerast í hreyf-
ingunni á hverjum tíma. Ég óska blaðinu
velfarnaðar um ókomin ár sem og ung-
mennafélagshreyfingunni allri. Ég vil veg
Skinfaxa sem mestan,“ sagði Sigurbjörn
Árni Arngrímsson í spjalli við Skinfaxa.
Kristján Yngvason, sem sat í stjórn UMFÍ
1987–2001, þekkir vel sögu Skinfaxa.
Kristján segir blaðið hafa mikið gildi fyrir
hreyfinguna. Að hans mati rekur blaðið
sögu UMFÍ sem er stórt atriði í hans huga.
„Blaðið er á allan hátt nauðsynlegt og
Skinfaxi hefur líka mikið tilfinningalegt
gildi. Það er yrði skarð fyrir skildi ef hans
nyti ekki við. Ég byrjaði að lesa blaðið
Kristján Yngvason, fyrrum stjórnarmaður UMFÍ:
Skinfaxi rekur sögu UMFÍ
reglulega um 1970, þegar ég varð for-
maður í ungmennafélagi,“ sagði Kristján
Yngvason.
„Það er í raun alveg stórkostlegt að
Skinfaxi hafi náð að halda velli allan
þennan tíma. Það hafa stundum komið
erfið tímabil og ég minnist sérstaklega
áranna 1989 til 1990. Þau voru strembin
en það tókst að rétta úr kútnum og
blaðið hélt sjó. Það er mikilvægt fyrir
svona stóra hreyfingu, á borð við UMFÍ,
að halda úti málgagni. Mér finnst blaðið
tengja höfuðstöðvarnar við grasrótina.
Ég óska blaðinu alls hins besta í fram-
tíðinni en í dag kemur að blaðinu gott
fólk sem er að vinna gott starf,“ sagði
Kristján Ingvason.
Skinfaxi
100
1909–2009
ára