Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.2009, Page 21

Skinfaxi - 01.11.2009, Page 21
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 21 Hafsteinn Þorvaldsson, formaður UMFÍ 1969–1979: Eitt af glæsilegustu blöðum landsins Á þessum síðustu árum í lífi lands og þjóðar, þegar Íslendingar, ein hamingju- samasta þjóð í heimi, má horfa upp á það, að reisn hennar í samfélagi þjóða og efna- hags- og félagslegu sjálfstæði hennar sé jafnvel ógnað af ástæðum sem enn hafa ekki verið skilgreindar til fulls, fagnar ung- mennafélagshreyfingin á Íslandi eitt hundrað ára farsælu starfi í öllum byggð- um landsins. Hreyfingin sem í öndverðu valdi sér það verkefni að vinna að ræktun lýðs og lands og alla tíð hefur unnið undir kjörorðinu „Íslandi allt”. Ég þori að fullyrða, að margt væri með öðrum hætti í lífi þessarar þjóðar hefði ungmennafélagshreyfingarinnar ekki notið við. Á þessum eitt hundrað árum má segja að þjóðin hafi vaxið frá örbirgð til allsnægta og víða má finna þess vott að þar hafi ungmennafélögin og samtök þeirra, héraðssamböndin og heildarsamtökin UMFÍ, komið að verki. Þess vegna ber að fagna því, að á árinu 2007 kom út myndarlegt afmælisrit heildar- samtakanna, sem miðlar þessari merku sögu til komandi kynslóða. Og nú í ár minnumst við eitt hundrað ára sögu málgagns UMFÍ, Skinfaxa. Það var í októbermánuði 1909, sem fyrsta tölublað Skinfaxa kom út. Fyrsti rit- stjóri Skinfaxa var Helgi Valtýsson, kenn- ari við Flensborgarskólann í Hafnarfirði, og var blaðið fyrst í stað prentað í Prent- smiðju Hafnarfjarðar. „Skinfaxi heitir hann, og sól og sumaryl vill hann breiða yfir land allt. Bera kveðjur milli ungmenna- félaganna. Og færa þeim fréttir af starfi voru víðsvegar um land.” Þennan boðskap færði ritstjórinn, Helgi Valtýsson, landi og lýð í fyrsta tölublaði málgagns ungmennafélagshreyfingarinn- ar fyrir 100 árum. Segja má að þessi hvatningarorð frumherjanna hafi fylgt blaðinu okkar alla tíð. Útgáfa Skinfaxa hefur samt ekki alltaf verið dans á rósum. Lengi vel var útgáfa blaðsins ofviða samtökunum fjárhagslega og oft hafa komið tímabil, þar sem rit- stjóraskipti voru tíð og svo á stundum hefur hreyfingin notið þess að fá til starfa við blaðið landskunna ritsnillinga og hugsjónamenn sem rifið hafa blaðið upp, þegar við lá að útgáfan væri að lognast út af. Ég mun ekki í þessu stutta spjalli nefna nein fleiri nöfn, þessu greinir afmælisrit okkar ítarlega frá. Heldur vil ég árétta gildi þess fyrir samtök okkar að hafa átt þetta málgagn til þess að vekja athygli á málefnum hreyfingarinnar í áranna rás og gildi þeirra fyrir land og þjóð. Flytja fréttir af öflugu starfi, ein- stakra félaga og héraðssambanda, og sívaxandi málefnum sem heildarsam- tökin UMFÍ hafa tekið forystu í eða unnið í samstarfi við aðra. Í áranna rás hefur blaðið oft breytt um útlit og fjöldi tölublaða á ári hefur verið mjög mismunandi, en með stóraukinni prenttækni á síðustu árum er blaðið orðið eitt af glæsilegustu blöðum lands- ins, ef ekki það glæsilegasta. Alla tíð hefur kaupendafjöldi að blað- inu verið óviðunandi, miðað við félaga- fjölda í samtökunum, og finnst mér að við ættum að nota þessi merku tímamót í sögu þess til þess að fá fleiri áskrifendur að blaðinu okkar. Skinfaxi er örugglega glæsilegasta ung- menna- og íþróttablað landsins í dag. Og vil ég að lokum þakka forystu sam- takanna, ritnefnd og frábærum ritstjóra fyrir það, um leið og ég óska okkur öllum innilega til hamingju með eitt hundrað ára útgáfuafmæli Skinfaxa. Íslandi allt! Hafsteinn Þorvaldsson Fyrrverandi formenn UMFÍ á sambandsþingi í Keflavík. Frá vinstri: Hafsteinn Þorvaldsson, Þórir Jónsson og Björn Bjarndal Jónsson. Skinfaxi 100 1909–2009 ára

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.