Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.2010, Side 6

Skinfaxi - 01.11.2010, Side 6
6 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Skinfaxi 4. tbl. 2010 Ritstjóri: Jón Kristján Sigurðsson. Ábyrgðarmaður: Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ. Ljósmyndir: Jón Kristján Sigurðsson, Ómar Bragi Stefánsson, Gunnar Gunnars- son, Þorsteinn Eyþórsson, Jóhanna Kristín Hauksdóttir, Sigurður Sigmunds- son, Engilbert Olgeirsson o.fl. Umbrot og hönnun: Indígó. Prentun: Prentmet. Prófarkalestur: Helgi Magnússon. Auglýsingar: Miðlun ehf. og Gunnar Bender. Ritnefnd: Gunnar Gunnarsson, Kristín Hálfdánar- dóttir og Óskar Þór Halldórsson. Skrifstofa UMFÍ/Skinfaxa: Þjónustumiðstöð UMFÍ, Sigtúni 42, 105 Reykjavík. Sími: 568-2929 Netfang: umfi@umfi.is Heimasíða: www.umfi.is Starfsmenn UMFÍ: Sæmundur Runólfsson, framkv.stjóri, Alda Pálsdóttir, skrifstofustjóri, Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri, Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóri Skinfaxa og kynningarfulltrúi, Sigurður Guðmundsson, landsfulltrúi, Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi, með aðsetur á Sauðárkróki, Stjórn UMFÍ: Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður, Björg Jakobsdóttir, varaformaður, Björn Ármann Ólafsson, gjaldkeri, Örn Guðnason, ritari, Einar Haraldsson, meðstjórnandi, Eyrún Harpa Hlynsdóttir, meðstjórnandi, Garðar Svansson, meðstjórnandi, Ragnhildur Einarsdóttir, varasjórn, Haraldur Þór Jóhannsson, varastjórn, Gunnar Gunnarsson, varastjórn, Einar Kristján Jónsson, varastjórn. Forsíða: Ægir Þór Steinarsson, Fjölni, og Ragnar Ágúst Nathanaelsson, Hamri, eru í hópi efnilegustu körfuknattleiksmanna landsins. Árið 2010 rennur brátt skeið sitt á enda. Árið var í senn viðburðaríkt og gæfuríkt hjá ungmennafélags- hreyfingunni. Þegar litið er um öxl má hreyfingin vera afar stolt og get- ur horft björtum augum til nýja árs- ins sem bíður handan við hornið. Í hraðfleygu þjóðfélagi okkar, þar sem hlutirnir eru oft fljótir að breyt- ast, eru möguleikarnir endalausir. Styrkur og máttur UMFÍ er mikill og samtökin, með yfir eitt hundrað þúsund félaga, munu hér eftir sem hingað til vinna að góðum málum fyrir land og þjóð. Spennandi tímar blasa við á nýja árinu og krafturinn og áræðnin hef- ur sjaldan eða aldrei meiri. Að venju verður haldið Unglingalandsmót og að þessu sinni á Egilsstöðum. Síðasta mót í Borgarnesi verður lengi í minnum haft fyrir margra hluta sakir. Það heppnaðist einstak- lega vel og varð það fjölmennasta til þessa. Yfir 1.700 keppendur tóku þátt sem sýnir, svo að ekki verður um villst, að mótinu vex fiskur um hrygg á hverju ári. Unglingalands- mótin hafa sannarlega sannað gildi sitt því að á þeim gefst fjölskyld- unni kjörið tækifæri til að eiga skemmtilegar stundir saman. Verkefni á borð við almennings- íþróttir og Frjálsíþróttaskólann gengu vel og þátttaka var mjög góð í þeim. Þátttakendur í verkefninu Fjölskyldan á fjallið hafa t.d. ekki verið fleiri um árabil. Íþrótta- og æskulýðsstarf hefur líklega aldrei verið mikilvægara en á þeim þrengingatímum sem við lifum í dag. Það er því afar brýnt að við hlúum að þessum þætti og gæt- um þess sem aldrei fyrr að börn og unglingar eigi greiðan aðgang að íþrótta- og æskulýðsstarfi. Þessi þættir hafa sannað sig sem ein öfl- ugasta forvörnin. Það er von okkar allra að nýja árið verði okkur öllum gjöfult og happadrjúgt, að það gefi okkur tækifæri til að horfa björtum aug- um fram á veginn. Íslendingar hafa áður staðið frammi fyrir þrenging- um með með baráttuviljann að vopni en okkur hefur alltaf tekist að rétta úr kútnum. Það mun einnig gerast nú. Skinfaxi óskar ungmennafélög- um sem og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Horfum björtum augum fram á veginn Ritstjóraspjall: Jón Kristján Sigurðsson Dr. Howard Williamson, prófessor við Háskólann í Glamorgan í Wales, hélt hádegisfund í þjónustumiðstöð UMFÍ þann 5. nóvember sl. Howard var í fyrir- lestraferð hér á landi og gaf sér tíma til að hitta forystufólk í æskulýðsgeiranum á meðan dvöl hans stóð yfir. Dr. Howard Williamson er prófessor í evrópskri stefnu- mótun fyrir ungt fólk við Háskólann í Glamorgan. Dr. Williamson hefur áður starfað við Kaupmannahafnar-, Cardiff- og Oxford-háskóla. Hann hefur komið að stefnumótun í málefnum ungs fólks í Áhugaverður fundur um ungt fólk í Evrópu Wales í Englandi og fjölmörgum öðrum ríkj- um Evrópusambandsins á vegum Evrópu- ráðsins hátt í þriðja tug ára. Hann hefur mikla reynslu í vinnu af ýmsu tagi með ungu fólki, hefur skrifað fjölda bóka um málefni ungs fólks og birt á annað hundrað greina um málefni ungs fólks um allan heim. Hon- um var mikill heiður sýndur þegar hann var sæmdur CBE-heiðursorðu Bretlands fyrir störf sín. Hádegisfundurinn með dr. Williamson var afar athyglisverður og svaraði hann mörgum spurningum sem varpað var fram á fundinum. Frá hádegis- fundinum með dr. Howard Williamson í þjónustumið- stöð UMFÍ.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.