Skinfaxi - 01.11.2010, Síða 9
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 9
HVAR
ERU ÞAU
Í DAG?
Hreinn
Halldórsson
Hreinn Halldórsson kúluvarpari náði frá-
bærum árangri á keppnisferli sínum og
skipar sér tvímælalaust á bekk á meðal
fremstu íþróttamanna í íslenskri íþrótta-
sögu. Hreinn var þrívegis kjörinn íþrótta-
maður ársins, 1976, 1977 og 1979. Hann
átti lengi Íslandsmetið í kúluvarpi og
segja má að hann hafi staðið á hátindi
sínum þegar hann varð Evrópumeistari
innanhúss í San Sebastian á Spáni 1977.
Hreinn keppti á tvennum ólympíuleik-
um, í Montreal 1976 og í Moskvu 1980.
Hreinn Halldórsson býr nú á Egilsstöðum
og hefur umsjón með íþróttamannvirkjum
bæjarins. Hann fylgist vel með frjálsíþróttum
og stundum hefur hann verið að vinna með
frjálsíþróttasambandinu og er þar í móta-
nefnd. Hann hefur verið Ungmenna- og
íþróttasambandi Austurlands innan handar
þegar á þarf að halda.
„Íþróttirnar hafa gefið manni ákveðna lífs-
fyllingu og fólk á að nýta sér þær meðan
hægt er. Svo, þegar horft er til baka, þá
gleðst það yfir í hverju það tók þátt. Það
fylgir því líka ákveðinn þroski að taka þátt í
íþróttum, fá tækifæri til að ferðast um heim-
inn en þetta er hörkuvinna ef fólk ætlar að
ná árangri,“ sagði Hreinn.
Hreinn segist hafa hafið keppnisferil sinn
með HSS og síðan fór hann yfir í KR haustið
1975. Hann var ekki bara í kúluvarpinu því
að hann tók aðeins í kringluna líka en besti
árangur, sem hann á í henni, var 55,56 metrar.
Hreinn tók fyrst metið af Guðmundi Her-
mannssyni 1973. Síðan sló hann sitt eigið
met 4. júlí 1977 þegar hann kastaði kúlunni
21,09 metra á Gala-móti í Stokkhólmi og
„Íþróttirnar hafa
gefið mér ákveðna
lífsfyllingu“
það var jafnframt vallarmet sem stóð í nokk-
ur ár. Það met átti Hreinn til 1990 þegar
Pétur Guðmundsson bætti það með kasti
upp á 21,26 metra. Á Evrópumeistaramót-
inu innanhúss í San Sebastian 1977 kastaði
Hreinn kúlunni 20,59 metra og varð Evrópu-
meistari.
„Ég átti mjög skemmtileg augnablik á
mínum ferli. Það var alltaf gaman að vinna
og bæta sig en á þessum tíma var ég oft í
meiri keppni við sjálfan mig. Ég hefði alls
ekki viljað missa af þessum tíma. Ég æfði
mikið á þessum árum en vandamálið var að
ég þurfti að vinna líka. Þetta var ekki orðið
þægilegt eins og það er orðið hjá mörgum í
dag. Ég var síðan að keppa á móti mönnum
erlendis sem gerðu ekkert annað en að æfa.
Afrekssjóður var ekki til í gamla daga og í
raun voru engir sjóðir til að styðja við bakið
á íþróttamönnum í þá daga. Upp úr þessu,
er mér sagt, gerðu menn sér grein fyrir að
Að ofan:
Hreinn Halldórs-
son leiðbeindi
ungum og efni-
legum frjáls-
íþróttakrökkum í
frjálsíþróttaskóla
UMFÍ á Egilsstöð-
um í sumar.
Til hliðar:
„Strandamaður-
inn sterki“, Hreinn
Halldórsson, var
þrisvar kjörinn
íþróttamaður
ársins, 1976,
1977 og 1979.
eitthvað varð að gera og þeir sem komu á
eftir mér nutu góðs af þegar sjóðir studdu
við bakið á mönnum. Það þarf einfaldlega
að styðja íþróttafólk ef það á annað borð
ætlar að ná árangri,“ sagði Hreinn í samtali
við Skinfaxa.
Hann segir tæknina lítið hafa breyst í kúlu-
varpinu. Árangurinn byggist aðallega á því
að æfa skynsamlega og hafa góða aðstoð
þjálfara og lækna til að grípa inn í þegar
eitthvað er að gerast. Meiðsli eru yfirleitt
það sem kemur í veg fyrir að íþróttamenn
nái árangri. Vésteinn Hafsteinsson er til að
mynda með teymi í kringum sig til að
aðstoða og þjálfa fólk. Það er til fyrirmyndar
enda Vésteinn að ná frábærum árangri.
„Aðstaðan, sem frjálsíþróttamenn búa
við í dag, er allt önnur en hún var fyrir ekki
löngu síðan. Ef ætlast er til af íþróttafólki að
ná árangri þá er þetta leiðin. Það var algjör
bylting fyrir frjálsíþróttamenn að fá inni í
aðstöðunni sem nú er til staðar í Laugar-
dalnum. Svona aðstaða eða eitthvað í lík-
ingu við hana þyrfti að vera til staðar á fleiri
stöðum á landinu. Fyrir félögin á höfuð-
borgarsvæðinu var það mikill munur að
geta farið þarna inn og æft þar við full-
komnar aðstæður. Við sjáum bara fótbolta-
hallirnar en þær hafa tvímælalaust ýtt undir
miklar framfarir,“ sagði Hreinn Halldórsson.
Hreinn sagði framtíðina bjarta í frjálsum
íþróttum og margir efnilegir og upprenn-
andi einstaklingar væru að koma fram í
sviðsljósið.
„Við getum nefnt í því sambandi Helgu
Margréti Þorsteinsdóttur. Hún er sem betur
fer komin inn í þetta teymi hjá Vésteini og
ég ætla bara rétt að vona að það komi bara
ekkert fyrir hana svo að hún nái sem best-
um árangri. Nú þegar er hún komin langt
miðað við aldur og hún hefur alla mögu-
leika á að komast í fremstu röð. Hún hefur
það til að bera sem þarf,“ sagði Hreinn
Halldórsson í samtalinu við Skinfaxa.