Skinfaxi - 01.11.2010, Page 15
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 15
Mentól
eukalyptus
Meðal okkar allra
Stjarnan
50 ára
Ungmennafélagið
Stjarnan í Garðabæ
fagnaði 50 ára
afmæli sínu laugar-
daginn 30. október
sl. Af því tilefni var
blásið til fjölskyldu-
hátíðar í íþróttamiðstöð-
inni Ásgarði. Hátt í 1.000
manns mættu á afmælishátíðina.
Margt var til gamans gert, boðið var
upp á fimleikasýningu frá fimleikadeild
Stjörnunnar og dansatriði frá dansskóla
Birnu Björnsdóttur. Hans Klaufi og Froska-
prinsinn frá leikhópnum Lottu voru
kynntir á hátíðinni og skemmtu sér og
öðrum með margvíslegum uppátækjum.
Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar
tók á móti gestum og gangandi með
dúndrandi sveiflu og allir afmælisgest-
irnir fengu Stjörnumuffins frá Okkar
Bakaríi. Hápunktur hátíðarinnar var
hreystikeppni á milli deilda félagsins.
Andrés Skólahreystimeistari stýrði
keppninni, en knattspyrnudeild Stjörnunn-
ar stóð uppi sem sigurvegari eftir harða
úrslitakeppni við blakdeild! Að launum
hlaut sigurliðið ávaxtabakka frá Ávaxta-
bílnum.
Ungmennafélagið Stjarnan vill þakka
öllum, sem lögðu hönd á plóg, fyrir
stórgóða skemmtun.
Brosmildar
Stjörnukonur í
afmælishófi.