Ægir

Volume

Ægir - 01.09.1945, Page 4

Ægir - 01.09.1945, Page 4
178 Æ G 1 R liafa sannað, að tækilegt er að fást við, hæði frá iðnfræðilegu- og fjárhagslegu sjónarmiði. Leiðbeiningastarfsemin mundi að sjálfsögðu verða margþætt, en i'yrst og í'remst beinast að húsaskipan og fyrir- komulagi verksmiðja, vélum og öðrum út- húnaði og loks hráefnisvinnslu og frágangi vörunnar til útflutnings. Það liggur í augum uppi, að eiga er lílils virði að geta hafizt handa um framleiðslu í nýjum greinum með innlendar rann- sóknir og reynslu að bakhjalli. Mundi það vafalaust verða til þess að hvetja menn til að vikja af troðnum slóðum og beina þeim inn á nýjar brautir, er væru fyrirfram varð- aðar að mestu leyti. Þá er það einnig aug- Ijóst, að ósmár skildingur sparast við það að hafa allar rannsóknir í sambandi við fiskiðnað á sama stað, þar sem aðbúnaður allur héldist í hendur við menntun og reynslu starfsmanna, í stað þess að hola þeim niður á víð og dreif við óviðunandi skilyrði, svo að þeirra hluta vegna er al- veg undir hælinn lagt, hvort jákvæður ár- angur fæsl eða ekki. Allir hljóta líka að sjá, að slíkt fyrirkomulag er sízt til þess fallið að gefa þeim mönnum byr undir vængi, sem búið hafa s'ig undir ])essi störf með löngu námi heima og erlendis og eytt til j)ess miklum fjármunum. Húsrúm ])að, sem Rannsóknastofa Fiski- félagsins hefur lil umráða, er með öllu ónóg. Verkfæri og rannsóknaráhöld, sem stofnun þessi hefur aflað sér upp á síð- kastið, sitja í kössum þeim, sem þau hafa kojnið i frá útlöndum, vegna þess að ekki er hægt að koma þeim fyrir. Menn, sem nýkomnir eru erlendis frá og búið hafa sig undir að vinna að fiskiðnaðarrannsóknum Iiér heima, biða utangátta vegna þess að ekkert starfsrúm er til fyrir þá. Samtímis því, sem svona er í pottinn búr ið fyrir fiskiðnaðarrannsóknir i landinu, er hvatt lil stórfelldra framkvæmda í fiskiðn- aði — framleiðslugrein, sem íslendingar bafa sára litla reynslu i. Enginn vafi er á því, að það er óþurftarverk að ala á slíkri skoðun, sem mest virðist bera á í þessum efnum nú sem stendur. Það er vægast sagt grunnhygni að ætla sér þá dul, að nokkurt gagn sé í því að blekkja sjálfan sig né aðra um getu okkar til fiskiðnaðar. Við verðum hér sem annars staðar að koma til dyra eins og við erum búin. Við vitum, að hugur okkar stendur til þess, að hér komi upp mikill fislciðnaður, en við megum elcki gleyma því, að sitthvað er vilji og geta. Við vitum, að aðstæður til hráefnisöflunar til fiskiðnaðar eru að ýmsu leyti góðar frá náttúrunnar hendi, og því ber ekki að leyna né gleyma. En hins vegar skulum við hrein- skilnislega viðurkenna, að okkur skortir fólk með reynslu og þekltingu á nývinnshi í fiskiðnaði, og enn liggja elcki fyrir niður- stöður um það, hvaða þættir fiskiðnaðar _ það eru, sem heppilegast er að snúa sér að. miðað við hérlendar aðstæður og viðhorf á erlendum markaði. Að þessu athuguðu mætti öllum vera Ijóst, að einn af hornsteinum undir fisk- iðnað í landinu er rannsóknarstofa fyrir ])ennan iðnað, er sé svo búin að híbýlum, áhöldum og' starfsliði, að hún samsvari kröfum tímans og sé megnug þess að glíma við þau verkefni, sem við blasa og upp kunna að koma. Það stappar því nærri barnaskap að ætla sér að ráðast í miklar og dýrar framkvæmdir í sambandi við vinnslu á fiskiðnaðarvörum, án þess að sinna því af undirstöðuatriðunum, er telja má eigi hvað veigaminnst. Ef allt sj)jall okkar um aukinn og fjöl- þættari fiskiðnað er ekki aðeins út í bláinn eða tal svo sem hugur vill, þá er óumflýj- anlegt, að ])essi stofnun komi upp hið bráð- asta. Og þar sem vitað er, að hér er ekki um neilt grín að ræða heldur blálcalda al- vöru, verður alþingi að ætla á fjárlögúm fyrir 1946 nægilegt fé til þess að koma upp húsakynnum yfir rannsóknarstofnun fisk- iðnaðarins. Mæti mál þetta ekki fullum skilningi þar, á nýskipan atvinnúveganna ckki of miklum skilningi að mæta. Og það andsvar, að ekkert fé sé til, er svo auðsær vottur um andvaraleysi okkar á meðferð fjár, að ólíklegt mætti telja, að

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.