Ægir

Volume

Ægir - 01.09.1945, Page 20

Ægir - 01.09.1945, Page 20
194 Æ G I R þangað, ef þær bila, nieð alls konar farar- tækjum og skiljanlega oft langar leiðir leiðir með miklum tilkostnaði. Þetta er alveg óviðunandi ástand fyrir frystihúsin, og verður að bjarga þessu við með því, að kenna mönnuin að gera við vogir og gefa þeim umboð til þess á hverj- um stað. Síðan þyrfti Löggildingarstofan að hafa stöðug't mann á ferð, sem liti eftir viðgerðum þessara manna. Þar sem hraðfrystihúsin eru orðin nær 70 að tölu má lauslega gera ráð fyrir 200— 000 vogum í notkun suma tíma ársins við framleiðslu á erlendan markað, og verður að sjá svo um, að áhöld þessi séu í lagi. Ef við útveguðum okkur jafngóðar vogir, og notaðar eru við iiliðstæða vinnu í Bandaríkjunum, væri hættan mikils til úr sögunni og viðgerðarkostnaður lítill sem enginn. Pökkun fiskflaka. Útbúnaði við pökkun fiskflaka hef ég áður lýst í þessari skýrslu, eins og hún gerist bezt. Þann útbúnað þurfum við að taka upp. Ég vil í þessii sambandi minnast nokkuð á frágang fiski'Iakanna hjá okkur, eins og hann hefur verið. Fyrir ófrið var öllum fiskflökum hér, sem við seldum til Bretlands, paklcað í 7 Ibs. kartonpakka, sem voru vaxbornir að innan. Með þessar umbúðir byrjuðuin við 1936, og voru þær notaðar öll árin fram að stríðsbyrjun. í byrjun ófriðarins tók þessi framleiðsla okkar að vaxa mjög ört. Þar við bætist, að ómögulegt var að fá nógu mikið af vaxbornum karton. Þá var það ráð tekið, að pakka i pergamentpappír. Hefur það haldizt jafnan síðan. Þetta mætti kalla stríðspakkningu. Þetta kom ekki svo mjög að sök vegna þess, að á þess- um árum var fiskurinn notaður og' fluttur út jöfnum höndum. En árið 1944 keniur það svo fyrir, sennilega vegna ónógs slcipa- kosts Breta, að miklar birgðir safnast fyrir hér, og verður fiskurinn í sumum tilfellum allt að 8—10 mánðaa gamall áður en hann i er fluttur út. Þá kom greinilega í Ijós, að umbúðir þessar geta ekki varið fiskinn fyrir innþorrnun. Með öðrum orðum: Um- búðir þessar eru óhæfar, ef um langa geymslu fisksins er að ræða. Annað er líka áfátt um þessa pökkun okkar. ÖIl flökin í þessari 7 punda pakkn- ingu frjósa saman, og er ómögulegt að ná þeim sundur nema þýða allan pakkann. Þetta gerir fiskinn óhæfan til smásölu í svona pakkningu, og einnig mjög óþægi- legt lil matbúnings fyrir alla. Ef aftur á móti er pakkað einu og einu flaki í cellophanpappír, þá er hægt að losa allt í sundur strax og pakkinn er tekinn úr geymslu. Þetta er venjulega framkvæmt þannig, að flök, sem eru yfir 1 lbs. eru skorin sundur, og mun hagkvæmt að hvert stykki, sem pakkað er í cellophanpappír, séu um 1 Ibs. Pakkinn sjálfur getur svo verið 5,7 eða 10 Ibs., eftir því sem hentugt þykir á hverjum tíma. Þá munu 1 lbs. pakkningar verða mjög eftirsóttar í framtíðinni. Þær þurfa að vera útbúnar á sama hátt, fyrst í cellophan og síðan í karton. Utan um alla kartonpakka þarf síðan að brjóta cellophanpappír eða vaxborinn pappír. Fiskflök, sem þannig er um búið, geta menn óhræddir geyint í góðum geymslum mánuðum og jafnvel ár- um saman. Ég vil taka það fram í sambandi við þetta, að ég harma það fyrir okkar hönd, að það litla magn, sem við höfum sent af liraðfrystum fiskflökum til Bandaríkjanna þetta ár, skuli hafa verði sent í lélegum umbúðum. Þetta er ekki meira magn en það, að rétt mátulegt liefði verið að noia það í auglýsingaskyni fyrir komandi ár. Þótt talið sé að jiessi fiskur okkar, sem vestur fer nú, sé eingöngu notaður af hern- um, þá kemur það ekki málinu við. Her- menn eru menn eins og gengur og gerist og hafa alveg eins vel vit á fiski og aðrir. Meðal þeirra eru líka margir matreiðslu- menn, sem reka matsölu og hótel á friðar- tíma, svo og húsfeður, sein kaupa daglega mat fyrir heimili sitt.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.