Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1945, Síða 29

Ægir - 01.09.1945, Síða 29
Æ G I R 203 brúttó og mun taka nálægt 1400 smál. af síld. í því er 320 ha. Atlas-Imperialvél og aulc þess 50 hestafla Iijálparvél fyrir vind- ur, pumpur o. fl. Meðalganghraði skipsins er 10 mílur. Skipið hefur hlotið nafnið Fanney. Það lagði af stað frá Tacoma 22. ágúst síðastl. og kom til New York að mánuði liðnum. Þessi leið er um 6000 mílur. Fanney fór í gegnum Panamaskurðinn, og mun hún vera fyrsta ísl. skipið, sem fer þá leið. Ferð- in frá New York og hingað tók um 12 sól- arhringa. Skipstjóri á skipinu var Ingvar Einars- son, en hann fór til Bandaríkjanna í des- ember síðastl. til þess að sjá um smíði skipsins. Stýrimaður var Markús Sigur- jónsson, en hann kom á skipið í New York, og vélstjóri var G,ísli Hannesson. Skip þetta er fyrst og' fremst frabrugðið hérlendum síldveiðiskipum að því leyti, að nótabátar eru ekki notaðir við veiðarnar heldur aðeins lítill prannni og nótin er dregin á spili inn í skipið. Áhöfn er 8—9 menn, þegar skipið stundar veiðar. Þótt enn sé allt í óvissu um það, hvernig skip þelta reynist hér við síldveiðar, sýna kaup þess, að hlutaðeigendur hafa áhuga l'yrir að brjóta hér nýjar leiðir, og það er \ on manna, að tilraun þessi beri verðskuld- aðan árangur. Skip sökkva. Hið nýja skip Haukur, er keypt var hingað til lands frá Ivanada, og koin hing- að 17. júní siðastl., sökk undan Færeyjum 31. ágúst s. 1. Þegar þetta skeði, var blæja logn og stilltur sjór. Einum skipsmannin- um segist svo frá, að komið hafi eins og hnykkur á skipið að aftan, og við það hafi sjór byrjað að fossa inn í vélarúmið. Ágerðist lekinn svo mikið, að dælurnar höfðu ekki undan, og urðu því skipsmenn- irnir að koma sér í bátana og bjarga sér á þeim til lands. Gekk sú ferð slysalaust, þótt eigi væri hún hættulaus, vegna strauma og blindboða. Tóku Færeyingar skipbrots- rnönnum með ágætum. Mönnum var fátt við, er það fréttist hingað, að þetta nýja skip hefði sokkið vegna leka, í blíðskaparveðri. Áður hafði hvisazt, að skip þetta hefði orðið fyrir slílc- um skemmdum á útleið, að framkvæma

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.