Ægir

Årgang

Ægir - 01.09.1945, Side 37

Ægir - 01.09.1945, Side 37
Æ G I R 211 Ur ýmsum áttum. Slysavarnafélagi íslands berast gjafir. Landsbanki íslands var sextugur 18. sept. síðastl. í tilefni af afmælinu ákvað stjórn bankans að gefa Slysavarnafélaginu 50 þús. krónur. Tíu áruin áður, eða þegar bankinn átti fimmtíu ára afmæli, gaf bank- inn Slysavarnafélaginu jafn háa upphæð. Nýleg hefur Slysavarnafélaginu einnig borizt gjöf frá útgerðarfélaginu Helgafell í Reykjavík, að ujiphæð kr. 13 338.34. Fjár- uj)j)hæð þessi er hluti útgerðarfélagsins af hjörgunarlaunum, sem togarinn Helgafell lekk fyrir að bjarga vélbátnum Leifi Eiríkssyni, er hann var að því kominn að sökkva út af Breiðavík, norðan Látra- bjargs, 12. janúar siðastl. Verðlækkun á benzíni og olíum. í byrjun febrúar síðastl. lækkaði veru- lega verð á benzini og olíum. í vetur og í sumar var unnið að því að fá verðinu þok- að niður og hefur þetta nú tekizt, eftir að olíufélögin hér hafa á ný fengið beint við- skiptasamband við sambandsfélög sín er- lendis, og verður olía og benzín flutt eftir- leiðis beint til félaganna hér. Þessi lausn málsins hafði i för með sér mikla lækkun á olíum og benzíni, og' kom hún lil fram- kvæmda 1. olctóber síðastl. Benzín verður i Reykjavík 52 aurar Htrinn í stað 65 aura áður, hráolía 33 aurar kg í stað 49 aura og steinolía 53 aurar kg í stað 65 aura áður. Verðlækkun þessi er það mikil, að olíusmá- lestin er nú 30 kr. ódýrari og benzínsmálest- in 45 kr. ódýrari en hún var áður en hækk- unin kom til framkvæmda 3. febrúar síð- astl. Talið er, að þessi lækkun muni nema 7 milljónum króna á ári. Alþjóða hafrannsóknarráðstefna. Um miðjan október hófst í Kaupmanna- höfn þing alþjóðhafrannsóknarráðsins. Verkefni þingsins var að endurskipuleg'gja samvinnu milli þeirra þjóða, er gerzt hafa aðilar að ráðinu, og jafnframt, að gera áætlanir um framtíðarstarfsemi j)ess. Full- trúar hlutaðeigandi þjóða gáfu skýrslu um unnin störf á styrjaldarárunum. íslaiid gerðist sjálfstæður aðili í Alþjóða- bafrannsóknarráðinu árið 1938, en áður hafði Danmörk farið með umboð þess. Síðasta þing ráðsins var haldið í Berlin 1939, og mætti Árni Friðriksson fiskifræð- ingur þar lyrir hönd íslendinga. Að þessu sinni mættu fyrir hönd íslend- inga á þingi Aþjóðahafrannsóknarráðsins i Höfn: Jakob Möller sendiherra, Árni Friðriksson fiskifræðingur, dr. Finnur Guð- mundsson og dr. Hermann Einarsson. Skorað á stjórn Akureyrarbæjar að kaupa Krossanes. Sjómannafélögin á Akureyri héldu ný- lega umræðufundi um atvinnumál. Var þar samþykkt áskorun til bæjarstjórnar Akur- eyrar þess efnis, að festa kaup á Krossa- nesverksmiðjunni, þar sem lílcur væru til, að hún væri til sölu og einstaklingar mundu þegar hafa gert tilboð í hana. — Þá skoraði fundurinn á bæjarstjórnina að vinna að því að fyrirhuguð niðursuðuvérk- smiðja ríkisins verði reisl á Akureyri. Loks skoraði l'undurinn á bæjarstjórnina að i’esta kaup á tveim af þeim togurum, er ríkisstjórnina hefur fest kaup á í Englandi. Lifrarsamlag Vestmannaeyja. Aðalfundur Lifrarsamlags Vestmanna- eyja fyrir árið 1944 var haldinn nýlega. Allir útvegsmenn í Vestmannaeyjum eru i samlaginu. Árið 1944 tók samlagið alls á móti til vinnslu 1465 smálestum af lifur, og var það heldur minna lifrarmagn en 1943. Úr þessu lýsi voru unnar 867 smál. af lýsi og stearini. Lýsið var allt kald- hreinsað og selt til Ameríku. Alls borgaði samlagið fyrir innlagða lifur kr. 2165 þús., eða kr. 1.50 fyrir kilótð af lifrinni. Þess var getið á l'undinum, að lifrarverðið í ár yrði minnsla kosti ekki lægra en 1944. —

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.