Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.09.1950, Qupperneq 25

Ægir - 01.09.1950, Qupperneq 25
Æ G I R 199 Tafla XIV. Þátttaka í síldveiðunum 1949 og 1948 (herpinótaskip). 1949 1948 Tegund skipa Tala skipa Rúml. brúttó Tala skipv. Tala herpin. Tala skipa Rúml. brúttó Tala skipv. Tala lierpin. 4 1196 86 4 4 1196 87 4 Botnvörpuskip Gufuskip (önnur) 8 1508 156 8 9 1713 175 9 Mótorskip 187 14174 2598 186 229 16916 3252 223 Samtais 199 16878 2840 198 242 19825 3514 236 Það liefur verið cinkenni á aflaleysis- sumrunum fimm, að aðalveiðin hefur jafn- an verið mjög austarlega á veiðisvæðinu cða helzt við Norðausturland beggja megin Langaness. Þetta var einnig mjög áberandi nu, og má meðal annars sjá af því, að mjög verulegur hluti þeirrar síldar, sem síldar- verksmiðjur ríkisins tóku á móti, kom til Raufarhafnar, sem liggur á austursvæðinu, en hins vegar tiltölulega mjög lítið til verk- smiðjanna á miðsvæðinu og ekkert teljandi þeirra verksmiðja, sem þar eru fyrir vestan eða við Húnaflóa. Veiða hvers einstaks skips, sem veiddi með herpinót eða hringnót, svo og meðal- afli hinna einstöku skipaflokka er sýnt í töflu XV. Rf litið er á meðalafla flotans í heild, bá kemur í ljós, að hann var 2245 mál og tunnur, sem er minni meðalafli en öll hin aflaleysisárin að undanteknu árinu 1948, en þá var meðalaflinn 1792 mál og tunnur, Sem var það lægsta, sem meðalaflinn hafði komizt fram til þess tíma. Meðalafli hinna 4 botnvörpuskipa, sem l’átt tóku í veiðunum, var aðeins 1000 mál °g tunnur og hefur aldrei verið lægri. Meðalafli gufuskipanna var hins vegar 2341 mál og tunnur, sem er nokkru meira en árið áður, en þá var meðalaflinn 1914 mál og tunnur. Um meðalafla herpinótaskipanna, þ. e. a- s. mótorskipanna, er svipað að segja, að lann var nokkru liærri en árið áður eða 2389 mál og tunnur á móti 1993. Tala hringnótabátanna hefur farið vax- andi nú um allmörg ár og fjölgaði t. d. um þrettán frá árinu 1948 og varð nú 89. Með- alafli þessara báta varð 1602 mál og tunn- ur, eða rétt aðeins meira en verið hafði árið áður. Aðeins einir tvílembingar voru nú gerðir út, og öfluðu þeir 2020 mál og tunnur, en meðalafli þeirra árið áður hafði verið 1897 mál og tunnur, og árið 1947, þegar meðal- afli hinna skipaflokkanna varð töluvert hærri en árið 1949, hafði meðalafli tví- lembinganna aðeins verið 975 mál og tunnur. Hagnýting sumarsildarinnar breytist ekki mikið frá ári til árs að öðru leyti en því, að sé veiðin rýr, fer hlutfallslega meira til sölt- unar og frystingar, en hins vegar sé veiðin mikil, taka verksmiðjurnar á móti hlut- fallslega meira magni. Að þessu sinni fór þó minna til söltunar en ætla hefði mátt, ef litið er á aflamagnið eitt, en ástæðan til þess var sú, að síldin veiddist svo fjarri söltunar- stöðvunum, eða eins og áður getur aðallega við Norðausturland, en helztu og stærstu söltunarstöðvarnar eru við miðsvæðið, á Siglufirði. Til verksmiðjanna fóru að þessu sinni rúmlega 79% af heildaraflanum yfir sumarið eða lítið eitt meira en árið áður, en hins vegar fóru þá til söltunar aðeins rúml. 16%, en hafði verið 21.5% árið 1948. Venju fremur mikið var fryst af síld norð- anlands að þessu sinni, og fór 4.4% af síld- araflanum til frystingar. Verður þá fyrst sagt frá bræðslusíldaraflanum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.