Ægir - 01.09.1950, Blaðsíða 68
242
Æ G I R
en 3.5 metrar á breidd, en dýpið við stór-
straumsfjöru aðeins 1.5 metrar. Er bryggj-
an steypt og grjótfyllt með steyptri þekju.
Djúpivogur. Þar var steypt yfir landgang
hafskipabryggjunnar, sem gerð var á ár-
inu 1948, og að öðru leyti gengið endan-
le|ía frá mannvirkjum þessum.
Höfn i Hornafirði. Þar var unnið áfram
að dýpkun með sanddælu. Ný hafskipa-
bryggja var gerð við dýplcunarsvæðið fram
af víkinni, sem fyllt var upp á árinu 1948.
Er bryggja þessi staurabryggja 10 metra
löng og 8 metra breið. Dýpið við bryggj-
una er um 4 metrar um stórstraumsfjöru.
Vestmannaeyjar. Allmikið var unnið að
dýpkun Vestmannaeyjahafna á nokkrum
svæðum. Lokið var við stækkun á Vogin-
um, sem myndar svo nefnda Friðarhöfn,
og er hann nú lengdur um helming frá því
sem áður var. Innsiglingin var víkkuð og
dýpkuð innantil í höfninni, og svo nefndur
Færeyingapollur innst í höfninni lítið eitt
dýpkaður. Unnið var að því enn fremur
að lengja Friðarhafnarbryggjuna um 100
metra og var því verki næstum lokið.
Eyrarbakki. Haustið 1949 var hafin
dýpkun innsiglingarleiðarinnar inn á báta-
leguna á svæði því, sem nefnist Skúma-
slaðaós. Er það þröng renna fremur erfið
yfirferðar um fjöru. Var sprengt allmikið
og tekið upp grjót og meðal annars teknir
burtu 3 þröskuldar, sem verstir hafa
reynzt.
Þorlákshöfn. Hafnargarðurinn þar var
lengdur um rúinlega 50 metra, en breidd
lians er 10 metrar. Er garðurinn nú alls
orðinn 170 metrar á lengd og nær út á
dýpi, sem er um 5 metrar miðað við stór-
straumsfjöru.
Grindavík (Járngerðarstaðir). Þar var
unnið allmikið að dýpkun. Efri hluti renn-
unnar (um 130 metrar) inn í Hópið var
dýpkaður niður í 3 metra dýpi miðað við
stórstraumsfjöru, en hann var áður um 2
metrar. Einnig var rennan breikkuð nokk-
uð til austurs. Þar fyrir framan reyndist
klapparrimi í botni á 2 metra dýpi og 15
nietra bili svo lítið var unnt að dýpka þar
12. Vitabyggingar.
Enginn nýr viti var byggður á þessu ári,
en hins vegar var endurbyggt vitahúsið í
Grimsey á Steingrimsfirði. Hefur orðið
nauðsynlegt á seinni árum að endurhyggja
nokkur vitahús, sem orðin voru gömul og
úr sér gengin. Þá var byggt vélahús við
radiovitann á Hornbjargi.
Enn fremur voru sett til hráðabirgða
Ijóstæki í vitana í Jökulfjörðum og Arnar-
firði.
að þessu sinni. Fyrir framan aflur á móti
reyndist dýpra niður á klöppina, og var
rennan dýpkuð þar í 2.5 metra. Inni á
sjálfu Hópinu var allstórt svæði inn að
hafnargarðinum dýpkað í 3 metra.
Keflavik. Efri hluti hafnargarðsins í
Keflavík var styrktur og hækkaður á um
00 metra bili. Settur var járnbentur stein-
steypuveggur utan við, sem náði 1 metra
yl'ir eldri skjólvegg garðsins og hvíldi á
þeim grjótfláa, sem var þar fyrir. Allmikið
af stórgrýti var síðan sett útfyrir til við-
bótar við fláann. Ein af bátabryggjunum
innan við garðinn var lengd um 12 metra,
cn breidd hennar er 10 metrar. Dýpi við
enda bryggjunnar er nú um 3 metrar mið-
að við stórstraumsfjöru.
Njarðvík. Klapparnefsbryggjan var lengd
um 26 mctra og bryggjan öll hækkuð um
1 metra á 160 nietra bili. Lokið var við
steypt plan með skjólvegg norðan við
Vogar. Steypt var um 30 metra löng og
Jjryggjuna.
7 metra breið bátabryggja út frá Þóruskeri
og lokið við grjótfyllingu á skerinu.
Hafnarfjörður. Hafnargarðurinn sunnan
megin fjarðarins var lengdur um 150 metra
og var um áramótin orðinn um 310 metra
langur. Dýpi við garðsendann er orðið um
5 metrar á stórstraumsfjöru. Er garðurinn
byggður ú.r grágrýti, sem sprengt er úr
Hvaleyrarholti. Ytri flái hans er stein-
steyptur og að ofan steypt akbraut 4.5
nietra breið með skjólvegg á ytri brún.