Ægir - 01.09.1950, Side 58
232
Æ G I R
Undanfarin ár, eða allt frá þvi að styrj-
öldinni lauk, hefur þeim löndum farið
fjölgandi, sem keypt hafa íslenzlcar sjáv-
arafurðir. Að þessu sinni er talið, að fluttar
hafi verið sjávarafurðir frá Islandi til 38
landa, og er það 4 löndum fleira en árið
áður. Ef útflutningnum er skipt niður á
lönd, þá kemur í ljós, að ekki hefur orðið
mikil breyting á þeirri skiptingu frá því,
sem var á árinu 1948. Bretland cr enn lang-
hæst með 36.6%, sem er raunar allmiklu
meira en árið áður, en þá var hluti Bret-
lands 30.3%. Einnig hefur hluti Þýzkalands
aukizt allverulega eða úr 18.8% í 23.7%,
og er þar að sjálfsögðu aðallega um að ræða
freðfiskinn, sem þangað var fluttur á ár-
inu. Þriðja landið í röðinn er Banda-
ríkin með 6.2%, eða lítið eitt rninna en árið
áður. Ítalía var með 5.4%, sem er allmikil
aukning frá árinu áður, og var það vegna
þess, að saltfiskútflutningurinn varð nú
nokkru meiri en þá. Tékkóslóvakía var með
4.7%, sem er allverulega minna en var árið
áður, en þá var hluti Tékkóslóvakíu 8.1%,
og stafar þessi lækkun fyrst og fremst af
því, að síldveiðarnar brugðust og miklu
minna var flutt út af síldarmjöli en áður
var og gert hafði verið ráð fyrir með samn-
ingum. Þá kemur næst Holland með 4.2%,
sem er mjög miklu minna en árið áður, en
þá var hluti Hollands 9.3%. Þcssi lækkun
stafar einnig af því, að síldveiðarnar brugð-
ust og ekki var flutt neitt síldarmjöl til
Hollands á árinu, svo sem gert hafði verið
ráð fyrir og gert var árið áður, og einuig af
þvi, að Hollendingar tóku ekki á árinu þann
fisk, sem um hafði verið samið, heldur
dróst fram yfir áramótin og nokkuð fram á
árið 1950, að sá fiskur, þ. e. a. s. freðfisk-
ur, yrði fluttur út. Grikkland var með 3.4%
af útflutningnum á móti 3.2% árið áður,
Finnland með 2.6%, Pólland með 2.4% og
Portúgal 2.3%, en það land hafði ekkert
keypt órið áður. Var þar um að ræða salt-
fisk, sem seldur var til Portúgal, en það
land var svo sem kunnugt er fyrir styrjöld-
ina eitt með hinum lieztu marlcaðslöndum
fyrir saltl'isk. Af Norðurlöndum var Dan-
mörk hæst, en þó aðeins með 2%, scm staf-
aði meðal annars af því, að síldveiðarnar
brug'ðust, og Svíþjóð aðeins með 1.6%, og
var hinn litli hluti Svíþjóðar einnig því að
kenna, að síldveiðarnar brugðust og ekki
var unnt að afgreiða þá síld, sem um hafði
verið samið. Þá minnkaði mjög hluti Frakk-
lands í útflutningnum eða úr 4.6% í aðeins
1.2%, sem stafaði af því, að lítill sem enginn
freðfiskur var fluttur til Frakklands á ár-
inu, en þá vöru höfðu Frakkar keypt nokk-
uð undanfarin ár. Önnur lönd eru svo með
enn minna, svo sem Palestína, Austurríki,
Sviss o. fl.
Tafla XXXV gefur yfirlit yfir útflutning
sjávarafurða á árunurn 1948 og 1949 skipt
eftir útflutningslöndum.
Af verkuðum sallfiski var lítið flutt út
á árinu eða aðeins tæplega 300 smál. á móti
1500 smál. árið áður. Lítið hefur verið um
verltun á saltfiski undanfarin ár og mikið
af því, sem flutt var út á árinu 1948, var
aðeins hálfverkaður fiskur af framleiðslu
ársins 1947. Fór verkaði fiskurinn aðallega
til Suður- og Mið-Ameríku.
Hins vegar var útflutningur af óverlcuð-
um saltfiski nokkru meiri nú en árið áður,
enda framleiðslan töluvert miklu meiri. Alls
var flutt út 15 668 smál., en 13 309 smál.
árið áður. Var þó allmikið af saltfiski eftir
í landinu um áramót, og var það ekki flutt
út fyrr en komið var fram á árið 1950.
Grikkland varð eins og árið áður stærsti
kaupandinn af saltfiski og keypti tæpl. 5000
smál., sem var þó nokkru minna en árið
áður, en þá hafði Grikkland keypt rúmlega
6000 smál. Það magn, er fór til Ítalíu, sem
var annar stærsti kaupandinn, var því nær
hið sama og árið áður, rúmlega 4000 smál.
Þriðja í röðinni var Portúgal með 3500
smál., en það land hafði ekki keypt neinn
saltfisk árið áður og raunar ekki svo neinu
næmi síðan fyrir styrjöldina. Menn vona,
að framhald verði á sölu saltfisks til Portú-
gal og að íslenzkum saltfiski takist á nýjan
leik að vinna þann markað, sem hann áður
hafði. Þá keypti Bretland um 1600 smál.
af saltfiski, sem var að vísu læplega 400