Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1980, Síða 11

Ægir - 01.12.1980, Síða 11
Setningarræða Más Elíssonar fiskimálastjóra Ég vil bjóða þingfull- trúa og gesti velkomna til Fiskiþings, hins 39. í röð- inni. Ég vil í upphafi minn- ast tveggja félaga okkar sem látizt hafa frá því að við komum hér saman á síðasta ári — þeirra Krist- jáns Gústafssonar, útg,- manns frá Höfn í Horna- firði og Jóns Axels Pét urssonar, bankastjóra Reykjavík. Kristján Gúst- afsson lézt á Borgarspítalanum í Reykjavík hinn 27. apríl s.l. tæplega sextugur að aldri. Hann var fæddur á Djúpavogi hinn 12. maí 1921. Eins og títt er um fólk í sjávarplássum tók hann að stunda sjó og starfa við fiskvinnslu strax á unglingsárum sín- um. Hann lauk fiskimannaprófi hinu meira á árinu 1947 og gerðist skömmu síðar stýrimaður og síðan skipstjóri á ýmsum skipum. Sjálfstæðan útgerðar- rekstur hóf hann 1960 og rak hann lengst af frá Hornafirði til ársins 1976. Hann stofnaði og til veiðarfæragerðar og var framkvæmdastjóri henn- ar þar til hann stofnaði með öðrum til síldarsölt- unar er síðar varð umsvifamikið fyrirtæki á Höfn. Kristján átti sæti á Fiskiþingi 1975 og 1976, sem fulltrúi Austfirðinga og tók um langt árabil virkan þátt í félagasamtökum — ekki sízt Sambandi Fiski- deilda í Austfirðingafjórðungi. Jón Axel Pétursson bankastjóri lézt í Reykjavík hinn 6. júní s.l. Hann var fæddur á Eyrarbakka hinn 29. sept. 1898 og var því rúmlega áttræður, er hann féll frá. Hann stundaði um hríð sjómennsku frá Eyrarbakka og Þorlákshöfn en síðan m.a. á skipum Eimskipafélags íslands. Eftir að hafa lokið farmannaprófi frá Stýrimannaskólanum árið 1920 var hann í siglingum á norskum og enskum skipum m.a. sem stýrimaður. Um margra ára skeið var hann hafnsögumaður í Reykjavík. Framkvæmda- stjóri BÚR var hann frá 1946-1961 og settur bankastjóri við Landsbanka íslands frá 1961 til þess að hann hætti störfum fyrir aldurssakir. Hann tók mikinn þátt í félagsstörfum — var lengi bæjar- fulltrúi Alþýðuflokksins í Reykjavík, í stjórn Stýri- mannafélags íslands og lengi formaður þess. Mörg fleiri félagsmálastörf hans mætti nefna. Jón Axel átti sæti í stjórn Fiskifélags íslands frá 1957-1970, sem varamaður Emils Jónssonar fyrrv. sjávarút- vegsráðherra. Mætti hann reglulega á fundum í ráðherratíð Emils. Þá vil ég minnast starfsmanns Fiskifélagsins, Guðmundur Péturssonar skipstjóra, sem lézt á s.l. vori. Guðmundur starfaði við Áhafnadeild Afla- tryggingasjóðs — vinsæll maður og vel látinn, ná- kvæmur og samvizkusamur í starfi. Frá því að síðasta Fiskiþing var haldið í nóvemb- er 1979, hafa 24 sjómenn látið lífið við skyldustörf sín. Er það mikil þlóðtaka sjómannastéttinni og meiri en mörg undangengin ár. Bið ég viðstadda að rísa úr sætum í virðingar- skyni. Ég vil leyfa mér að minna á, að á þessu ári eru liðin 75 ár frá því að tímaritið Ægir kom fyrst út. Útgefandi og fyrsti ritstjóri var Matthías Þórðar- son frá Móum. Ekki er hægt að segja að tíð rit- stjóraskipti hafi verið við Ægi, auk Matthíasar má nefna Sveinbjörn Egilsson, Lúðvík Kristjánsson og Davíð Ólafsson. Get ég á þessum vettvangi ekki stillt mig um að minnast á hið gagnmerka rit um íslenzka sjávarhætti, sem Lúðvík Kristjánsson hefur unnið að um margra ára skeið, en fyrsta bindi þess er nýlega komið út. Þá vil ég minna á, að á næsta ári — nánar til- tekið hinn 20. febrúar verða liðin 70 ár frá stofnun Fiskifélags íslands. Fyrsta Fiskiþing var háð árið 1913 og getum við í þessum salarkynnum séð mynd af þeim fyrirrennurum okkar, sem þetta þing sátu. Þrátt fyrir mikinn efnahagsvanda, sem hrjáð hefur okkur undanfarið og enn blasir við, er ekki hægt að segja annað en að náttúran hafi verið okkur gjöful á þessu ári, bæði til lands og sjávar. Undantekning er að sjálfsögðu loðnan — ástand loðnustofnsins og það að við sitjum ekki lengur einir við það borð. Loðnustofninn, eins og aðrir uppsjávarfiskar, virðist háðari meiri sveiflum en aðrir fiskstofnar og þessvegna væntanlega við- kvæmari fyrir veiðum en þeir. Þegar við þetta ÆGIR — 627

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.