Ægir

Årgang

Ægir - 01.12.1980, Side 22

Ægir - 01.12.1980, Side 22
sérhvern aldursflokk þorsks (mæld í fiskveiðidán- arstuðlum) árabilið 1971-1975 annars vegar við árabilið 1977-1979 hins vegar, eftir að möskva- stækkunin er komin í framkvæmd og Bretar horfnir af íslandsmiðum, þá kemur í ljós að svo til öll sóknarminnkunin, sem hefur átt sér stað, er i yngri aldursflokkana eins og vænta mátti. Þannig hefur sókn í 3 ára þorsk minnkað um 78% skv. bráðabirgðatölum, 35% í 4 ára þorsk og 25% í 5 ára þorsk, en sóknarminnkun eldri þorsks er hverf- andi (tafla 1). Tafla 1. Þorsksókn. Meðal fiskveiðidánarstuðlar Sóknar- minnkun Aldur 1971-1975 1977-1979 í % 3 0,112 0,025 78 4 0,313 0,204 35 5 0,493 0,372 25 6 0,557 0,504 10 7 1,045 0,986 6 Hvaða áhrif hefur þetta svo haft á afrakstur þorskstofnsins? Það verður best skýrt með eftir- farandi línuriti (1. mynd). Á línuritinu eru tveir ferlar. Lægri ferillinn sýnir afrakstur þorskveið- anna árabilið 1971-1975 en efri ferillinn sýnir af- raksturinn árabilið 1977-1979. Lóðrétti ásinn á myndinni gefur til kynna afrakstur á nýliða mæld- ur i kílógrömmum, en lárétti ásinn sýnir sókn mælda í fiskveiðidánarstuðlum. Skoðum fyrst neðri ferilinn. Við vaxandi sókn vex afrakstur á nýliða unz hámark næst við fiskveiðidánarstuðul nálægt 0,6. Sé sókn aukin frekar leiðir það ekki til aukins afraksturs heldur minnkar hann lítils- háttar. Hámarksafrakstur samkvæmt þessum ferli er um 1,68 kg á 3 ára nýliða. Þær friðunarráðstaf- anir, sem hafa verið í framkvæmd að undanförnu hafa gefið smáfiskunum tækifæri til þess að taka út vöxt sinn svo afrakstur hefur aukist talsvert. Efri ferillinn sýnir þetta glögglega. Betri nýting stofnsins hefur leitt til þess að hver 3 ára nýliði gefur nú af sér mun meiri afrakstur en fyrir nokkr- um árum. Hámarksafrakstur á nýliða hefur aukist úr 1,68 kg í 1,93 kg, og næst það mark við hlut- fallslega enn lægri sókn eða við fiskveiðidánar- stuðul nálægt 0,5. Sé sókn aukin fram yfir það minnkar afraksturinn hratt, þar sem sóknin er orðin meiri en sem nemur eðlilegri grisjun stofns- ins og of margir fiskar veiðast, án þess að þeir fái tækifæri að taka út nægan vöxt. Til þess að skýra út hvernig þetta línurit er unnið og einnig hvernig hugtakið afrakstur á nýliða er hugsað, fylgir hér með tafla, sem sýnir veiðar með tvenns konar möskvastærð og áhrif þessara mösk- va á afrakstur stofns (tafla 2). Hugsum okkur fisk- stofn, sem telur í upphafi 1000 fiska 1 árs gamla. Gerum ráð fyrir, að 20% stofnsins deyi náttúr- legum dauðdaga. Veiðum þennan stofn með 80 mm möskvastærð. Ef við skoðum töfluna, þá er ljóst að allur eins árs fiskurinn smýgur möskvann. Tafla 2. Áhrif tveggja möskvastcerða á afrakstur fiskstofns við óbreytta sókn. Náttúrleg affötl 20%, fiskveiðidauði 40% á ári. Möskvi Stofn- Nátt. Aldur stærð dauði 1 1000 200 2 800 126 3 384 61 4 184 29 5 88 14 6 42 7 7 20 3 8 10 2 9 5 1 10 2 0 11 1 0 12 80 mm Veiði Veiði í kg Stofn- stœrð 0 0.0 1000 290 87.0 800 139 83.4 640 67 73.7 512 32 54.4 246 15 37.5 118 7 25.8 57 3 14.7 27 2 15.0 13 1 6.4 6 1 6.8 3 1 Möskvi 140 mm Nátt. dauði Veiði Veiði í kg 200 0 0.0 160 0 0.0 128 0 0.0 81 185 203.5 39 89 151.3 19 42 105.0 9 21 77.7 4 10 49.0 2 5 28.8 1 2 12.7 1 1 6.8 0 1 7.1 Heildarþyngd aflans 404.8 kg Heildarþyngd aflans 641.1 kg Afrakstur á nýliða: 404,8 kg/1000 = 0,4 kg Afrakstur á nýliða: 641,1 kg/1000 = 0,64 kg 638 — ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.