Ægir - 01.12.1980, Side 28
stakt fyrirtæki sem gerir þetta og er það nú að færa
út kvíarnar.
Einnig hafa verið gerðar margs konar rannsókn-
ir með að framleiða meltur úr fiskslógi, grásleppu,
hvalinnyflum o.fl. og tilraunir með að nota melt-
urnar til fóðurs bæði í Danmörku og hérlendis í
samvinnu við Rannsóknastofnun landbúnaðarins
o.fl. Tilraunir eru í gangi með að nýta slóg í fiski-
skipum þ.e. einkum skuttogurum og nýta þá lifr-
ina um leið sé hún ekki hirt sérstaklega. Hafa þess-
ar rannsóknir þegar gefið það góða raun að nokkr-
ir aðilar eru að hefja framleiðslu á meltum úr slógi
og bændur að byrja að nota þær til fóðurs.
Rannsóknastofnunin hefur um árabil beitt sér
fyrir þvi að gera tilraunir með efnafræðilegar og
eðlisfræðilegar mœlingar á ferskleika fisks, eða
gæðum ferskfisks. Þó að skynmatið sé enn það
eina sem gildir í þessum efnum, eru TMA-mæling-
ar stofnunarinnar í vaxandi mæli notaðar til við-
miðunar um hráefnisgæði í fiskvinnslu.
Rannsóknastofnunin hefur staðið að tilrauna-
vinnslu á kolmunna og öðrum smáfiski í mörg ár.
Niðurstöður úr þessum tilraunum hafa leitt í ljós
að smáfiskskreið er sú framleiðsla sem er arðvæn-
legust. Sá búnaður sem stofnunin á stóran þátt í að
hanna og smíða er eftirþurrkunarbúnaður, færi-
bandaþurrkari og grindaþurrkari. Eftirþurrkunar-
búnaðurinn er notaður í þremur þurrkstöðvum.
Grindaþurrkari og allur annar þurrkbúnaður í
einni stöðinni er hannaður hjá Tæknideild Rann-
sóknastofnunarinnar.
Tæknideildin hefur prófað mismunandi þurrk-
skilyrði og fundið hagkvæmustu þurrkskilyrðin
fyrir grindaklefa, færibandaklefa og eftirþurrkun.
Þurrkbúnaðurinn er útfærður þannig að hægt er
að þurrka jöfnum höndum hausa, loðnu, spærling
og kolmunna. Slægingavélar hafa verið prófaðar á
kolmunna og ein slægingarvél smíðuð fyrir kol-
munna.
Norðmenn hafa hagnýtt sér þær niðurstöður
sem Rannsóknastofnunin hefur aflað um þurrk-
skilyrði og þurrktækni, en náin samvinna hefur
verið höfð um nýtingu á smáfiski til manneldis við
Norðmenn og Færeyinga á vegum Nordforsk sem
hefur veitt fé til hluta af rannsóknunum.
Á síðustu árum hafa annað slagið skotið upp
kollinum áður nær því óþekkt vandamál varðandi
Salmonella-mengun í fiskmjöli. Stofnunin hefur
aðstoðað verksmiðjur við að komast fyrir slíka
mengun og gefið út „praktískar” leiðbeiningar um
fyrirbyggjandi aðgerðir. Hafa þessar leiðbeiningar
verið hagnýttar a.m.k. af sumum framleiðendum á
ósekkjuðu fiskmjöli með góðum árangri.
Undanfarin ár hafa hörpudiskframleiðendur all-
oft leitað til stofnunarinnar vegna vandamála er
upp komu í vinnslu og vegna söluerfiðleika. At-
huganir Rannsóknastofnunarinnar beindust aðal-
lega að þeim þáttum er áhrif hafa á nýtingu hörpu-
diskvöðvans, gerð hans (seigju) og vatnstap við
þiðnun, en hörpudiskur er aðallega seldur laus-
frystur án skeljar. Kom í ljós að forsuðan hafði
mikil áhrif á seigju og var framfleiðendum ráðlagt
að takmarka suðutímann við það sem nauðsynlegt
er til skelflettingar. Með því að takmarka vatns-
notkun við það sem nauðsynlegt er, og með notk-
un polyfosfata á lokastigi vinnslunnar, á vatnstap
við þiðnun hörpudisks ekki að vera vandamál leng-
ur. Aðrar athuganir sýndu, að íslenskur hörpu-
diskur stóð nokkrum erlendum sýnishornum fram-
ar gerlafræðilega.
Hreinlœtis- og hollustuþættir í fiskiðnaði voru í
gagngerðri endurskoðun á árunum um 1970. Var
þá á stofnuninni unnið geysimikið starf við samn-
ingu staðla og leiðbeininga um hreinlæti og búnað
frystihúsa. Bæklingurinn „Handbók fyrir frysti-
hús. Hreinlætis- og hollustuþættir,” hefur æ síðan
allt fram á þennan dag verið notaður sem leiðarvís-
ir í þessum efnum. Þó að hið bandaríska lagafrum-
varp sem hratt þessari herferð af stað hafi dagað
uppi, er enginn vafi á því að iðnaðurinn nýtur og
hefur notið mikils góðs af þeirri vinnu sem þá var
unnin.
í sambandi við söltun á sild hafa verið gerðar
margs konar rannsóknir síðustu árin einkum um
áhrif mismunandi saltskammta og myndun spinn-
pœkils í sykursíld. Hafa þessar rannsóknir leitt til
þess, að saltendur hafa nú miklu betra vald á sölt-
uninni, þ.e. að fá saltsíld með ákveðnu saltmagni
en á síðustu árum hafa kaupendur gert æ strangari
kröfur á þessu sviði.
Þegar farið var að salta síld á haustin og fram
eftir vetri um og upp úr 1960 komu upp vandamál
sem lýstu sér í því að síldin verkaðist oft illa. Rann-
sóknastofnunin tók þetta mál upp og sýndi fram á
það með rannsóknum að nauðsynlegt er að geyma
síldina við allt að 10°C fyrstu 3-5 vikurnar eftir
söltun til þess að hún verkist vel, þ.e. að geymslu-
hitastigið hefur úrslitaáhrif um það, að síldin nái
að verkast, enda mun um flóknar ensímatískar
efnabreytingar að ræða. Síðari tilraunir sýndu, að
644 — ÆGIR