Ægir - 01.03.1981, Side 34
Afmæliskveðja:
Gunnar Bjarnason,
fyrrverandi skólastjóri
Vélskóla íslands,
áttræður 12. febrúar 1981.
Árið 1945 þegar Sjó-
mannaskólahúsið var
tekið í notkun og Vél-
skólinn flutti þangað hóf
Gunnar Bjarnason
kennslu við skólann og
skólastjóri varð hann tíu
árum seinna, árið 1955,
þegar Marinus E. Jessen
lét af störfum. Gunnar
lét sjálfur af störfum fyr-
ir tíu árum fyrir aldurs-
sakir. Undirritaður hóf kennslu við Vélskólann ár-
ið 1955 þegar Gunnar varð skólastjóri og starfaði
mjög náið með Gunnari að málefnum skólans.
Það fer ekki milli mála að Gunnar Bjarnason hafði
mikil áhrif á vélstjóramenntunina, í fyrsta lagi
vegna þess að hann er mikill áhugamaður og ham-
hleypa til vinnu og svo hitt að fyrir dyrum stóðu
miklar breytingar á vélstjóranámi og öllu fram-
haldsnámi í landinu. Unnið hafði verið að samein-
ingu vélstjóranámsins undir einn hatt en Fiskifélag
íslands hafði hluta af því, hin svokölluðu mótor-
námskeið. Iðnfræðslan, þar á meðal járnsmíða-
námið, var i endurskoðun en Vélskólinn var um
hríð aðeins framhaldsskóli járniðnaðarmanna.
Með árunum dró mjög úr aðsókn að skólanum
enda var hún algjörlega háð því hve margir lær-
lingar voru við nám i járnsmíði og útskrifuðust.
Árið 1966 voru sett ný lög um vélstjóranám sem
Gunnar Bjarnason átti mikinn þátt í að móta en
með lögum þessum og undir stjórn Gunnars óx
skóíinn og dafnaði ótrúlega ört. Vélskólinn hefur
lengstum verið vanbúinn tækjum til verklegrar
kennslu, en Gunnar fékk því til leiðar komið að
vélasalurinn var stækkaður og keyptar nýjar vélar,
en einnig var hafist handa við nýbyggingu til þess
að unnt væri að taka við fleiri nemendum vegna
aukinnar aðsóknar að skólanum.
Saga Vélskólans og starfsferill Gunnars Bjarna-
sonar eru tvinnuð saman en hvað má segja um
manninn sjálfan? Eins og fram hefur komið þegar
er aðdáunarverður dugnaður Gunnars að koma
málefnum i framkvæmd sem eru á dagskrá í hverj-
um tíma. Nemendur hans segja að hann hafi verið
mjög góður kennari og sá nemandi sem ekki gæ(1
lært hjá Gunnari Bjarnasyni gæti alls ekkert lært-
Margs er að minnast i sambandi við Gunnar
Bjarnason sem skólastjóra og yfirmann. Það var
ákaflega gaman að vinna með honum og láta hríf'
ast af eldlegum áhuga hans sem stundum var að
okkar dómi heldur mikill.
Það bætti úr skák að Gunnar er mikill húmor-
isti, hefur gaman af félagsskap og er mikill gleðt-
og samkvæmismaður og er við brugðið hans
snjöllu og hnitmiðuðu tækifærisræðum á manna-
mótum. Gunnar hefur létta lund og leikarahæf1'
leika enda stundaði hann leikstörf um tíma hja
Leikfélagi Reykjavíkur, sem margur man, og naut
þeirrar skemmtunar i ríkum mæli.
Gunnar hefur margsinnum lýst því yfir að hann
hafi haft mikla gleði og ánægju af því að vera
kennari enda var hann mjög vinsæll og komu
hæfileikar hans þar ótvírætt í ljós. Hann kapP'
kostaði að sníða skólann eftir íslenskum aðstæð'
um og að veita nemendum eins hagnýta menntun
og frekast var kostur svo að þeir væru vel í stakk
búnir að takast á við störf sín í atvinnulífinu.
Gunnar Bjarnason hefur haft mörg áhugamál
um dagana og meðal annars starfað mikið í Odd'
fellowreglunni og Stangaveiðifélagi Reykjavíkut
og var formaður Stangaveiðifélagsins um árabil- 1
skólamálum og tæknimálum hefur hann komið
víða við utan Vélskólans, svo sem við stofnun
Tækniskólans íslands, saltfiskþurrkun (en hann
hannaði hús til slíks), frystihús og kælitækni (el1
hann skrifaði m.a. kennslubók um kælitækni)>
svartolíubrennslu í skipum og hefur hann tekið
saman og þýtt bækur í því sambandi.
Andrés Guðjónsson, skólastjod■
154 —ÆGIR