Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1981, Blaðsíða 48

Ægir - 01.03.1981, Blaðsíða 48
Tölvuvinnsla veðurkorta. Einnig eru send um 580 skeyti frá háloftaathugun- arstöðvum, en þau eru mun lengri en venjulegu veðurskeytin, stundum miklu lengri, svo að segja má að þau tvöfaldi efnið, sem flytja þarf milli landanna. Við þetta bætast svo upplýsingar frá gervihnöttum, veðurspár í talnaformi, myndsend veðurkort og fleira og fleira. Skipti á öllu þessu efnjeru ákveðin af samtökunum með samþykki og að frumkvæði aðildarríkjanna. Þau hafa lika ákveðið sín á milli skipulag þess afkastamikla fjarskiptakerfis, sem þarf tii allra þessara sendinga og hvernig það yrði fjármagnað. Aðalþátturinn í þessu kerfi er mikilvirk fjarskipta- rás, sem liggur umhverfis jörðina, með höfuð sendingar- og móttökustöðvar í Washington, Moskvu og Melbourne i Ástralíu. Auk þessara þriggja eru svo margar aðrar stöðvar á rásinni, en frá þessum stöðvum liggja svo hliðarsambönd til annarra heimshluta og stöðva í öllum aðildarríkj- um. Langmestum hluta þessara fjarskipta er stýrt með tölvum, sumum mjög stórum og afkastamikl- um. Aðildarríkin hafa einnig komið sér saman um, hvaða stöðvar vinni úr þessum upplýsingum og geri veðurspár auk annars. Hinar stærstu þeirra eru að sjálfsögðu tengdar stóru fjarskiptastöðvun- um, en aðrar minni og misstórar eru mjög víða í flestum eða öllum aðildarríkjum. Öll þessi starf- semi er nefnd því yfirgripsmikla nafni „World Weather Watch,” eða veðurgæzla veraldar. En starfsemi Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar og aðildarríkjanna ná til fleiri verkefna en að gera veðurathuganir og veðurspár. Eitt hið mikilvæg- asta þeirra er tækniaðstoð milli aðildarríkjanna. Að sjálfsögðu liggur s'traumurinn langmest frá tækniþróuðum ríkjum til hinna, sem skemmra eru á veg komin. Mikið af þessu verki er unnið í sam- vinnu við þróunarstarfsemi Sameinuðu þjóðanna, en önnur atriði eru að öllu leyti á vegum Alþjóða- veðurfræðistofnunarinnar. Skylt er að geta þess hér með þakklæti, að íslendingar hafa á ýmsum tímum notið góðs af þessari starfsemi. í ár vinna milli áttatíu og níutíu sérfræðingar á vegum stofn- unarinnar í ýmsum löndum við þessi mál, og einnig að fræðslustarfsemi á ýmsum sviðum veðurfræð- innar. Samtökin hafa á ýmsum tímum vakið athygh aðildarríkja sinna á brýnum rannsóknarverkefn- um, sem tengjast veðurfræði beint eða óbeint, og skipulagt samvinnu um þau. Þar má nefna rann- sóknarverkefni, sem stóð yfir í nokkur ár og beind- ist einkum að athugunum og rannsóknum á höfun- um við miðjarðarlinu og á suðurhveli jarðar, en þessi svæði eru meðal hinna mikilvægustu í orku- búskap jarðarinnar. Þá má nefna ýmis rannsókn- arverkefni, sem beinast að umhverfisverndun, vatnafræði, sólarorku og fleira og fleira. En samvinna þjóða á veðurfræðisviðinu er ekki öll innan véþanda Alþjóðaveðurfræðistofnunar- innar. Alþjóðaflugmálastofnunin, sem einnig ef ein af tæknistofnunum Sameinuðu þjóðanna, hef- ir einnig komið þar við sögu, og á þann hátt, sern okkur íslendinga hefir varðað miklu. Eftir síðasta stríð var ýmis alþjóðasamvinna mjög i molum, samskipti veðurfræðinga höfðu legið að miklu leyti niðri, og þeir voru að undirbua endurskipulagningu samtaka sinna og ekki í stakk búnir til að standa að mikilli nýbreytni. Hins vegat hafði flugtæknin tekið gifurlegum framförum 1 stríðinu, flugsamgöngur voru sýnilega í örum vexti og þörfnuðust mjög aukinnar veðurþjónustu, þvl 1 þá daga var ekki flogið ofar veðrum á langleiðum eins og nú. Allmörg aðildarríki Flugmálastofnun- arinnartóku sig saman um að reka veðurathug- unarskip á Norður-Atlantshafi, (rekstur þeirra höfðu bandamenn reyndar hafið i stríðinu) og að styrkja rekstur veðurathugunarstöðva á Islandi og Grænlandi. Reyndar voru svona rekstrarstyrkir ekki alveg einsdæmi, fyrir stríð höfðu íslendingat fengið styrk til veðurathugana erlendis frá, og v>ð 168 — ÆGIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.