Ægir - 01.03.1981, Qupperneq 43
^eztur. Með þessu er hagnýtt reynsla þeirra
manna, sem sjálfir stunda útgerð, sjómennsku og
fiskvinnslu.
-o—
Fjölmargir eru þeir, sem átt hafa sinn þátt í mót-
Un sögu Fiskifélags íslands, stjórnarmenn, Fiski-
b'ngsfulltrúar, erindrekar og trúnaðarmenn í ver-
stöðvum, að ógleymdu starfsfólki. Ekki verður hér
8etið einstakra manna, en öllum þeim eru færðar
bakkir fyrir þeirra störf. Þeim sem horfnir eru yfir
nioðuna miklu vottum við virðingu okkar, hinum,
Senr eru þátttakendur eða fylgjast með starfinu af
ahuga vegna liðinnar þátttöku, þökkum við starfs
u§ arangur. Þá eru þeir og margir aðrir sem félagið
e*ir átt samskipti við á 70 ára starfi, hér er um að
r®ða opinbera aðila, einstaklinga, hagsmunasam-
|ök og fyrirtæki. Það er von og ósk alls Fiskifé-
agsfólks, að þau samskipti megi eftirleiðis sem
'ngað til vera góð og farsæl, jafnframt því, að
starf það, er Fiskifélag íslands leysir af hendi,
Verði til hagsældar atvinnugreinum sjávarútvegsins
°S öllum þegnum þjóðfélagsins.
Heiðursfélag ar
^ hátíðafundi stjórnar Fiskifélagsins 20. febr.
var tilkynnt að þeir
Davíð Ólafsson, Seðlabankastjóri og
Lúðvík Kristjánsson, rithöfundur
efðu verið kjörnir heiðursfélagar Fiskifélags ís-
•ands.
^ið það tækifæri sagði Már Elísson, fiskimála-
stJ- m.a.:
Stjórn Fiskifélagsins ákvað á fundi sínum hinn
jan. að útnefna þá Davíð Ólafsson, Seðla-
ankastjóra og fyrrum fiskimálastjóra og Lúðvík
t'stjánsson rithöfund, fyrrum ritstjóra Ægis,
e'ðursfélaga Fiskifélags íslands, fyrir mikilvæg
störf í þágu félagsins og íslenzks sjávarútvegs.
Mörg orð um ágæti þessara manna og störf
.^'rra eru alls óþörf, enda báðir löngu landskunn-
^að má segja, að það sem ég hefi áður sagt um
stðrf Fiskifélagsins sé einnig að hluta lýsing á starfi
Havíð var forystumaður Fiskifélagsins frá 1940-
1967 á umbrotatímum bæði í okkar þjóðlífi og í al-
þjóðamálum. Átti hann drjúgan þátt í að móta
stefnu í sjávarútvegsmálum með störfum sínum
bæði innanlands og utan og stóð í fylkingabrjósti á
Hafréttarráðstefnum 1958 og 1960. Þarf ekki að út-
lista það nánar, þótt einungis sé minnzt á þann
þátt.
Lúðvík Kristjánsson ritstjóri Ægis frá 1937-
1954, hefur með ritstörfum sínum hafið sögu sjáv-
arútvegsins og raunar margra aðra þætti atvinnu-
sögu okkar í annað veldi. Þarf ekki annað en að
benda á hið einstæða afrek, sem hann hefur unnið
með ritun íslenzkra sjávarhátta.
Ekki er hægt að ræða um þessa ágætu menn án
þess jafnframt að minnast á þeirra ágætu eigin-
konur, Ágústu Gísladóttur og Helgu Proppé, sem
stutt háfa menn sína með ráðum og dáð og eru
staddar hér hjá okkur.
Um leið og ég þakka þeim Davíð og Lúðvík í
nafni stjórnar Fiskifélags íslands, vil ég til
staðfestu kjöri þeirra sem heiðursfélaga afhenda
þeim hérmeð heiðursskjöl.
FISKVERÐ
Hörpudiskur THkynning nr. 3/1981
Verðlagsráð sjávarútvegsins hefur ákveðið eftir-
farandi lágmarksverð á hörðudiski frá 1. janúar til
31. maí 1981.
Frá 1/1 Frá 1/3
Hörpudiskur í vinnsluhæfu ástandi: til 28/2 til 31/5
a) 7cm á hæð og yfir, hvert kg.... kr. 1.95 kr. 2.07
b) 6 cm að 7 cm á hæð, hvert kg ... — 1.60 — 1.70
Verðið er miðað við að seljendur skili hörpu-
diski á flutningstæki við hlið veiðiskips og skal
hörpudiskurinn veginn á bílvog af löggiltum vigt-
armanni á vinnslustað og þess gætt, að sjór fylgi
ekki með.
Verðið miðast við gæða- og stærðarmat Fram-
leiðslueftirlits sjávarafurða og fari gæða- og
stærðarflokkun fram á vinnslustað.
Reykjavík, 17. febrúar 1981.
Verðlagsráð sjávarútvegsins.
ÆGIR — 163