Ægir - 01.03.1981, Qupperneq 72
SKIPSTAPAR OG SLYSFARIR
Rækjubátur fórst á
Öxafirði
Miðvikudaginn 26. nóv. s.l. fórst v/b Trausti ÞH 8
á_ leið frá Akureyri til Kópaskers, sem var hans
heima höfn. Báturinn var að koma úr viðgerð á
Akureyri og lagði af stað þaðan kl. 14,00 og kl.
10,00 um kvöldið höfðu skipverjar samband við
Kópasker og sögðust eiga um 10 sjm. ófarnar til
heimahafnar og gerðu ráð fyrir að verða þar kl.
23,30.
Þegar báturinn var ekki kominn að landi um
miðnætti var farið að óttast um hann, en veður var
VNV 8 vindstig, talsverður sjór og átta stiga frost.
V/b Sigþór ÞH frá Húsavík var staddur á Öxar-
firði og hóf þegar leit, en bátar frá Kópaskeri kom-
ust ekki frá vegna brims. Einnig gerðu tilraun til
leitar Geiri Péturs ÞH 140 rúml. og flutningaskipið
Rangá, en gátu lítið aðhafst vegna veðurs.
Björgunarsveitir frá Húsavík, Kópaskeri, Öxar-
firði og Kelduhverfi fóru einnig til leitar en að-
stæður voru erfiðar. Komst vindur uppí 10 vind-
stig um nóttina.
Vélbáturinn Trausti ÞH 8.
Yfirlitsmynd af Öxarfirði. Á stað merktu'”
A höfðu skipverjar á Trausta síðast sambanu
við land ki. 22 26. nóv. Á stað merktum B,1
svokallaðri Buðtungahöfn, fannst brak lir
Trausta morguninn eftir.
Barði Þórhallsson.
Kristinn Kristjánsson
Þegar birti af degi fannst brak úr bátnum, bjarg-
hringur og fleira rekald.
Tveir menn voru í bátnum og fórust þeir báðir.
Þeir voru:
Barði Þórhallsson Kópaskeri, fæddúr 14. sept-
1943, lætur eftir sig konu og þrjú börn.
Kristinn Kristjánsson Kópaskeri, fæddur 8. nóv.
1951, lætur einnig eftir sig konu og þrjú börn.
V/b Trausti ÞH 8 var 20 rúml. smíðaður á Akra-
nesi 1972 með 175 h. GM-vél frá 1975.
N.I.
192 — ÆGIR