Ægir - 01.01.1983, Síða 63
Auðunn Ágústsson og Emil Ragnarsson:
Taeknideild Fiskifélags íslands
r
Ahrif botngróðurs á olíu-
notkun og ganghraða
NORDFORSK-samstarfsverkefni.
A s.l. ári birtust þrjár greinar frá Tæknideild í
samnorrænu rannsóknarverkefni á sviði orku-
sparnaðar í fiskveiðum (sjá 4., 9. og 10. tbl. ’82). í
þessu tölublaði verður verkefnið ,,Áhrif botngróð-
urs á olíunotkun og ganghraða“ kynnt og birtar
fyrstu niðurstöður.
Inngangur:
Markmið viðkomandi verkefnis er eftirfarandi í
stórum dráttum: ,,Kanna áhrif botngróðurs og
yfirborðshrjúfleika á mótstöðu og olíunotkun við
breytilegan ganghraða fyrir mismunandi stærðir
fiskiskipa með beinum mælingum“.
Aður en umrætt verkefni var sett á laggirnar
hafði Tæknideild gert tilraun til að mæla þessi
ahrif. Það var haustið 1980 að mælingar fóru fram
1 Verði ÞH 4 fyrir og eftir botnhreinsun. Ekki voru
tök á að standa þannig að mælingum að fullnægj-
andi samsvörun fyrir og eftir botnhreinsun fengist,
auk þess sem deildin réði þá ekki yfir þeirri mæli-
tækni sem nú er fyrir hendi, og niðurstöður því
ekki nægilega marktækar.
Einsýnt var að mjög takmarkaðar upplýsingar
voru fyrir hendi um þennan þátt, þ.e. áhrif botn-
gróðurs á mótstöðu og olíunotkun fiskiskipa, og
Þá á norðlægum slóðum, en hins vegar frekar hægt
að finna ýmislegt um þetta efni fyrir stór flutninga-
ship á suðlægum siglingaleiðum. Frændur vorir á
Norðurlöndum sýndu umræddu verkefni mikinn
ahuga og töldu það rannsóknarvert.
Verkefnið felur í sér eftirfarandi:
— Beinar mœlingar á brennsluolíunotkun og
aflþörf, sem fall af ganghraða, fyrir og eftir
botnhreinsun og á milli hreinsana. Mælingar
spanni að minnsta kosti þrjár skipsstærðir.
— Skrá upplýsingar um siglingu viðkomandi
skipa, komuhafnir og tilsvarandi hafnartíma,
ástand botns fyrir og eftir botnhreinsun o.fl.
— Safna upplýsingum um slipptökur almennt,
þ.e. tíðni botnhreinsana fyrir fiskiskip hérlend-
is, ástand þeirra og hvernig þau eru almennt
meðhöndluð í slipp.
— Setja fram tölulegar niðurstöður um áhrif
botngróðurs í rekstri fiskiskipa, á grundvelli
mælinga og athugana, með tilliti til ýmissa
þátta, svo sem skipsstærðar, yfirborðsmeð-
höndlunar, tímalengdar í sjó, sjávarástands
o.fl.
í þessari fyrstu kynningu á verkefninu verður gerð
grein fyrir hvernig staðið er að gagnasöfnun í
slippum og kynntar niðurstöður í fyrstu mælingu
fyrir og eftir botnhreinsun. Fyrsta skipið í þessum
mælingum var Víkingur AK 100.
Gagnaöflun um botnhreinsanir:
Eins og fram hefur komið er einn þáttur þessa
verkefnis allvíðtæk gagnaöflun um ástand skipa,
Mvnd I: Vikingur AK 100 að koma i slipp. Helzln nwl skipsins:
Mesta lengd 72.51 ni, breidd 10.30 m, dýpl að efra þilfari 7.90 m
Aðalvél er Alpha Diesel 2880 hö við 750 sn/mín.
ÆGIR — 51