Ægir - 01.01.1983, Qupperneq 66
Eftirfarandi þættir voru mældir og skráðir:
— Tímasetning mælingar (kl)
— Snúningshraði aðalvélar (innstilltur) (sn/mín)
— Skrúfuskurður (innstilltur). (skali)
— Siglingatími miili fastra miða (sek)
— Tímataka á 2 sml vegalengd (sek) '
— Tímataka á ákveðnu lítramagni skv. teljara rennslismælis (sek)
— Aflestur af ljóstölumæli tengdum rennslis- mæli (1/klst)
— Snúningshraði skrúfuöxuls (sn/min)
— „Strain" í skrúfuöxli (skali)
— Dælustilling eldsneytisdælna (skali)
— Afgashiti fyrir og eftir forþjöppu (°C)
— Fæðiloftsþrýstingur (bar)
— Fæðiloftshiti (°C)
Helstu mælitæki sem notuð voru við mælingar:
Við aflmælingar:
Vægismælir deildarinnar, sem er frá Astech
Electronics Ltd. Vægismælirinn mælir tognun á
yfirborði öxulsins, svonefnt strain (sjá umfjöll-
un í 10. tbl. ’82).
Snúningshraðamælir, smiðaður hjá Tækni-
deild, sem mælir snúningshraða skrúfuöxuls
(sjá umfjöllun í lO.tbl. ’82).
Rennslismælir deildarinnar, sem er frá
Brooks Instrument b.v., svonefndur Oval Mini
Oil Meter af gerð LS 2122 (sjá umfjöllun í 11.
tbl. ’78).
Við ákvörðun ganghraða var fyrst og fremst
byggt á tímatöku með skeiðklukku á fastri vega-
lengd, en auk þess var notaður vegmælir (hand-
logg) frá Walker’s af gerð Cerub III til saman-
burðar. í skipinu er ekki rafmagnsvegmælir.
Ýmsir þættir sem segja til um ástand aðalvélar
voru skráðir og þá með mælum sem eru áfastir
aðalvél.
í töflum I og II koma fram niðurstöður mæl-
inga, annars vegar fyrir botnhreinsun og hins vegar
eftir. í fremsta dálknum kemur fram röðin á mæl-
ingunum, næst kemur innstilltur
snúningshraði vélar samkvæmt
mæli í brú, þá stigning, þ.e.
staða skiptiteinsins. Næsti
dálkur gefur hraða skipsins,
reiknaðan út frá siglingatíma
milli miða, og síðan kemur
meðaltal olíunotkunar í viðkom-
andi ferð. Því næst kemur
dálkur sem gefur snúningshraða
skrúfuöxuls, þá vægið í öxlinum
og loks afl yfirfært á skrúfuöxul.
Aftasti dálkurinn gefur síðan
bremsuafl vélar í hö, sem fæst
út frá öxulafli, reiknað með 3%
töpum í niðurfærslugir, að
viðbættu afli sem fer í að snúa
óútkúplanlegu aflúttaki á fram-
enda vélar.
Á linuriti I kemur fram sam-
band olíunotkunar og siglinga-
hraða fyrir þrjá mismunandi
snúningshraða og breytilega
stigningu, annars vegar fyrir og
hins vegar eftir botnhreinsun og
málun. Eðlilegt er að bera saman
ferla fyrir sama snúningshraða
Tafla I. Niðurstöður mœlinga hreinsun. í Víkingi AK, 1.10.1982, fyrirbotn-
Snúnhr. Stigning Gang- Olíu- Snúnhr. Snún. Aflá Afl
Ferð vélar skrúfu hraði notkun öxuls vœgi öxul vélar
no sn/mín hn l/klst sn/min kpm hö hö
1 550 4.60 9.41 173.9 160.0 3432 767 824
2 550 5.00 10.04 192.8 160.0 3935 879 940
3 550 5.25 10.48 204.1 160.0 4198 938 1001
6 650 3.80 9.90 225.3 191.9 3785 1014 1090
4 650 4.50 11.17 274.3 192.5 4805 1291 1375
5 650 5.45 12.86 364.2 192.5 6650 1787 1887
7 • 750 3.80 11.53 336.1 222.2 5024 1559 1660
8 750 4.50 13.01 407.8 222.0 6337 1964 2079
9 750 5.20 14.03 494.6 221.1 7795 2406 2534
10 750 5.45 14.51 530.8 219.9 8486 2605 2740
Tafla II. Niðurstöður mælinga í Víkingi AK, 9.10.1982, eftir botn- hreinsun.
Snúnhr. Stigning Gang- Olíu- Snúnhr. Snún. Aflá Afl
Ferð vélar skrúfu hraði notkun öxuls vœgi öxul vélar
no sn/mín hn l/klst sn/mín kpm hö hö
1 550 4.60 10.42 139.4 161.8 1935 437 485
2 550 5.25 11.44 167.8 161.7 2830 639 693
8 550 6.05 12.24 188.8 157.0 3940 864 923
3 650 4.50 12.11 210.9 192.0 3034 813 883
4 650 5.45 13.51 281.7 191.8 4412 1182 1262
5 750 3.80 12.62 263.7 222.9 3522 1096 1184
6 750 5.20 15.01 417.8 222.4 6591 2047 2164
. 7 750 5.80 16.12 506.8 221.0 8153 2516 2647
54 — ÆGIR