Ægir - 01.02.1990, Blaðsíða 16
68
ÆGIR
2/90
Ársafli er lítill eða rúm 7000 tonn
að jafnaði. Aflinn er að mestu
veiddur á króka en hringnót er
einnig notuð við veiðar á makríl.
Aflinn er fyrst og fremst túnfiskur
og makríll en einnig er dálítið veitt
af botnlægum fiski og humri eða
krabba. Humarinn er veiddur í
gildrur en hann lifir á hörðum og
grýttum botni. Opnir smábátar
koma með mestan afla að landi
eða allt að 85% ársaflans og fer sá
afli að mestu til neyslu innan-
lands. Stóru bátarnir veiða einkum
túnfisk með „pole and line" (stöng
og línu) aðferðinni en sá afli er
frystur og fluttur út. Útflutningur-
inn er að jafnaði lítill eða nokkur
þúsund tonn á ári.
Þróunarstarf íslendinga beindist
fyrst og fremst að stórútgerð og
útflutningi. Markmiðin voru að
efla hana og útflutninginn. Áhersl-
urnar hafa verið mismunandi á
þessu tíu ára tímabili en ætíð hefur
verið stefnt að sama markmiði.
Tímabilið hefur skipst í þrjá mis-
munandi kafla frá upphafi sem
kenndir hafa verið við þau skip
sem send voru til Cabo Verde.
Bjartstímabilið 1980-1981
M.S. Bjartur var fyrsta skipið sem
sent var til Cabo Verde ásamt sveit
vaskra manna. Verkefnið var
einnig frumraun íslendinga á
þessu sviði. Vitneskja um aðstæð-
ur á eyjunum var að skornum
skammti og að sumu leyti var
rennt blint í sjóinn hvað verkefnið
áhrærði.
Megináherslur þessa kafla var
fiskileit og tilraunaveiðar. Einkum
stóð til að efla nótaveiðar á makríl
og var búnaður miðaður við það.
Þegar til kom reyndist makríl-
gengd vera miklu minni við
eyjarnar en vænst var og varð
árangur af nótaveiðunum Iíti11-
Ýmsir erfiðleikar steðjuðu að
rekstrinum á þessum árum. Skipið
Bjartur, sem var gamall síldarbátur
byggður í Austur-Þýskalandi 1965
og hafði þjónað Norðfirðingum og
Grindvíkingum dyggilega í árarað-
ir, reyndist illa og bilaði mikið.
Rafbúnaður og ýmis tæki skipsins
tóku að bila ört í hitanum og
rakanum á Cabo Verde og olli það
miklum frátöfum. Þá voru að-
stæður allar mjög erfiðar í landi og
mikill skortur á allri nauðsynja-
vöru, vatni, olíu og ís sem gerði
mönnum lífið leitt. Lýðveldið var
ungt að árum á þessum tíma og
enn í sárum eftir sjálfstæðisbarátt-
una og stjórnvöld ekki búin að ná
tökum á stjórn landsins.
Útgerðarmenn og skipstjórar
Dráttarbraut fyrir allt að 450 þungatonn.
Pantið pláss tímanlega.
Botnhreinsun og málun.
Öll almenn viöhaldsvinna ásamt smíöi yfirbygginga og innréttinga.
Leitið upplýsinga og tilboða.
Skipasmíöastöðin Dröfn h/f
Strandgata 75, 220 Hafnarfirði. Símar: 50393 - 50483