Ægir - 01.02.1990, Blaðsíða 32
84
ÆGIR
2/90
írystiskipa er mestur á þessum
árum, en sú aukning á einungis að
hluta rætur að rekja til fyrrnefndrar
lagabreytingar.
Fjölgun skipa 1984-1989
Fjölgun skipa í fiskveiði-
flotanum er sýnd á línuriti 2. Hér
er sú undantekning gerð að sýna
einnig báta 10 brl. í dag er venja
að skipta veiðiflotanum í þrjá
stærðarflokka, þó mörk séu óljós
milli flokka.
Mest áberandi á árabilinu 1984-
1989, er mikil fjölgun þilfarsbáta
minni en 10 brúttórúmlestir. Þessi
flokkur skipa var eins og lesendur
Ægis vita, minna bundinn af
reglum kvótakerfisins, en stærri
skipin. Mönnum var þarna opin
leið að ódýrari kvóta. Að sjálf-
sögðu nýttu menn sér þessa leið
og afleiðingin var fjölgun minni
þilfarsbáta, um tæplega 94%, úr
155 bátum árið 1983 í 300 í árslok
1989. Fjölgunin átti sér að mestu
stað á árunum 1986-1989. Eins og
sést á línuriti 2, fjölgaði þilfars-
bátum minni en 10 brl mest á
árinu 1987, um 72 báta. Síðan
hefur dregið úr aukningu smábáta-
flotans, enda er búið að setja
reglur, sem takmarka fjölgun þess-
ara báta. Sú takmörkun ásamt
háum raunvöxtum á fjármagni,
hefur slegið á vöxt flota þilfarsbáta
10 brl. og minni.
Á línuriti 2, er einnig að finna
breytingar á fjölda skuttogara og
báta stærri en 10 brúttórúmlestir.
Varðandi fjölgun togara á árunum
1984-1989, þá er þar um sýndar-
vöxt að ræða. Skip hafa færst milli
flokka, svokölluð raðsmíðaskip
voru í fyrstu skráð sem bátar, en
síðar færð inn sem togarar. Rétt er
einnig að geta þess, að vegna þess
hve reglur um kvótann hafa verið
til skamms tíma í senn, þá hafa
útgerðarmenn hikað við að afskrá
skip af ótta við að tapa einhverjum
réttindum við næstu lagasetningu.
Afleiðingar skamms gildistíma lag-
anna hafa verið þær, að ætíð eru
inni á skipaskránni nokkrir togara,
sem í raun er búið að leggja.
Ef undan eru skilin raðsmíða-
skipin, sem sérstakar reglur giltu
um, hefur fjöldi virkra togara staðið
í stað á kvótaárunum. Hinsvegar
hefur bátum stærri en 10 brúttó-
rúmlestir fækkað um tuttugu og
átta, þar af um átján á síðastliðnu
ári. Einnig er töluverður fjöldi báta
og jafnvel togara inni á skipaskrá,
sem ætlunin er að úrelda, en bíða
einungis samþykktar alþingis á
nýjum kvótalögum.
Aukning brúttólestatölu
fiskiskipa >10 brl 1984-1989
Þrátt fyrir að fiskiskipum sem
fallið hafa undir reglur kvótakerfis-
Línurit 1
Vöxtur vélarafls íslenskra fiskiskipa
Fiskiskip > 10 brl.
Þúsund hestöfl