Ægir - 01.02.1990, Blaðsíða 24
ÆGIR
2/90
MEnilEFTUSKEin
í notkun um allan heim
Nútíma kerfi fyrir stiórnendur
Eykur nýtingu um aílt aó 10%
Fjárfesting sem borgar sig
Höföabakka 9, 112 Reykjavík
Sími: 91-686858 Fax: 91-672392
Ef nýtingin ykist um 4%, úr 39% í
43%, verða þetta 199 tonn sl.m.h.
eða 235 tonn óslægt sem gerir
rúma 18 úthaldsdaga, sem sam-
svara nánast heilli veiðiferð, auk
þess sem hér er einungis verið að
tala um þorsk, samanber mynd 6.
Reikni síðan hver fyrir sig hvað
þetta þýðir í minni útgerðarkostn-
aði og hærri hlut fyrir sjómennina.
Það er líka annar kostur við það
að taka verðmætin á sem stystum
tíma, en hann er sá að þegar
skipið er orðið verkefnalaust þá er
farið að líta í kringum sig eftir
nýjum verkefnum sem væri ekki
gert ef þessum 18 dögum er eytt í
að veiða fisk sem fer fyrir borð
aftur.
Nýjar vinnsluvélar
Það sem helst er horft til varð-
andi nýja vinnslutækni og flökun-
arnýtingu er hausun sem skilar
stærra hnakkastykki.
Til þess þarf nýja gerð aðgerða-
véla um borð og hausara sem sker
hnakkastykkið á ská. Aðgerða-
vélin frá MEKA hefur verið nefnd í
þessu sambandi, en hún á að geta
blóðgað, slægt og hausað í einu.
Aðrar vélar koma einnig til greina
t.d. vél frá Baader og Iras.
Þá er hausað með svokallaðri
saltfiskhausun þar sem klumbu-
beinið fylgir með búknum. Einu
flökunarvélarnar sem ráða við
klumbubeinið eru Baader 184
flökunarvélar. Við þetta ætti flaka-
nýting að geta aukist allt að 2% og
einnig er hægt að nýta mun stærri
hluta af þunnildum i blokk eða
marning.
Sá galli er hins vegar á B 184
vélinni að hún ræður ekki við
stærri fiska. Því verður óhjá-
kvæmilega að hafa tvær flökunar-
vélar um borð, en það bætir líka
flakanýtinguna þar sem minna
þarf að breyta stillingum vélanna
fyrir mismunandi stærð af fiski.